orkuskipti í þágu loftslagsmála og sjálfbærrar framtíðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrst og fremst hæstv. ráðherra fyrir svörin og hv. þingmönnum sem hér hafa tekið til máls. Ég held að við séum öll sammála um nauðsyn aðgerða. Nú gildir að leggja pólitískar línur sem stuðla að orkuskiptum í sátt við náttúru og samfélag. Við þurfum að stuðla að réttlátum umskiptum þar sem jaðarsettir hópar, bæði innan lands og í alþjóðlegu samhengi, eru ekki skildir eftir. Ég tek undir að þetta er verkefni sem er ekki bara á herðum hæstv. ráðherra. Þetta er verkefni samfélagsins og kannski sérstaklega verkefni stjórnmálanna, að vega og meta þá kosti sem eru fyrir hendi og taka svo pólitíska ákvörðun um hvernig við ætlum að forgangsraða orkunni á næstu árum. Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á orkuskiptin en það þarf að gæta að því að samlegð fylgi hverri aðgerð.
Ég tek líka undir það að ég hef vonir um að rammaáætlun verður samþykkt af Alþingi og tel það mikilvægan lið í skipulagðri nálgun á innlend orkuskipti. Tækifæri eru fólgin í því að stuðla að betri nýtni á orku, orkusparnaði og framleiðslu á sjálfbærri orku. Tækifæri eru fólgin í því að vera framúrskarandi á sviði tæknilausna, til að mynda að fanga kolefni eða stuðla að auknu hringrásarhagkerfi og þar með betri nýtingu á auðlindum. Það eru ekki síst tækifæri fólgin í því að hraða því að verða óháð jarðefnaeldsneyti. Með orðum Antonios Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, þá er jarðefnaeldsneyti endastöð fyrir plánetuna okkar, fyrir mannkynið og já fyrir hagkerfin. Orkuskiptin eru því mikilvægur þáttur af okkar framlagi til baráttunnar gegn loftslagsvá á alþjóðavettvangi. En á sama tíma þurfum við að horfa á heildarmyndina og fara í þær kerfisbreytingar sem eru grundvöllur losunarþolsþróunar.