152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[15:22]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Hér er komið til 3. umr. frumvarp sem hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd tók til sín á milli annarrar og þriðju, eins og það er kallað, á þingfundi í gær. Við fórum yfir kosningalögin með tilliti til frétta sem bárust af dómsmáli í Borgarnesi frá lögreglustjóranum á Vesturlandi í gær. Samróma niðurstaða nefndarinnar er að afgreiða þetta frumvarp eins og það liggur fyrir í dag. Um er að ræða dagsetningarmál, það varðar tilhliðrun dagsetninga vegna útgáfu kjörskrár og annað slíkt vegna sveitarstjórnarkosninga í vor. Eins og við öll vitum eru réttir tveir mánuðir til sveitarstjórnarkosninga og ljóst að tíminn er naumur og gera þarf þessa lagabreytingu svo að þær geti farið fram með lögmætum hætti. Hvað hitt atriðið varðar, sem snýst um innsigli eða öllu heldur frágang kjörgagna á öllum stigum framkvæmdar kosninga, og einnig refsinæmi ef ekki er farið að lögum, hefur hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ákveðið að taka þau atriði til umfjöllunar og við munum hefja þá umfjöllun á fundi okkar á morgun. Ef við sjáum nauðsyn á því að gera breytingartillögur við lögin og koma enn og aftur með frumvarp til breytinga á lögunum á þessum þingvetri munum við gera það. En hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er hins vegar einhuga um að afgreiða fyrirliggjandi frumvarp sem hér er til 3. umr. eins og það er í dag.