kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Forseti. Fólk er alveg gríðarlega úrræðagott í því að finna upp á einhverju nýju sem engum öðrum hefur dottið í hug. Ég held því að við gerum aldrei allt fullkomið. Við getum aldrei sett kosningalögin í algjöran kassa sem allir munu passa inn í og ekkert fer úrskeiðis. En við getum komið í veg fyrir mestu og krítískustu gallana með því einmitt að reyna að greina hvar þeir eiga sér stað. Einn lítill galli, sem mér finnst áhugaverður, í utankjörfundaratkvæðagreiðslu er t.d. hvaða bókstafur þetta er. (Gripið fram í.) Já, nákvæmlega. Þetta er bókstafur sem kemur á utankjörfundaratkvæðaseðli. (HFK: Þetta er D.)Þetta er D. (HFK: Þetta er sjálfstæður …) Þetta er ekkert langt frá því að vera P. (Gripið fram í.)
(Forseti (JSkúl): Forseti biður fólk um að hafa hljóð í salnum og hvetur hv. þingmann til að beina orðum sín til forseta.)
Afsakið. Við flettum t.d. upp í gamalli handskriftarbók, við vorum að leika okkur í nefndinni við að finna út hvaða stafur var hvað því að það voru nokkrir mjög skrýtnir. Við munum því alltaf lenda í einhverjum jaðartilfellum. Það þarf bara að greina það vel fyrir fram hvar krítísku staðirnir eru, t.d. í flutningi atkvæða milli kjörstaðar og talningastaðar, í talningu atkvæða — af öllum stöðum — að það sé góð vottun á öllum öryggisþáttum þar, endurtalning, yfirsýn (Forseti hringir.) og þess háttar og að það sé ekki skipt um t.d. aðferðafræði í miðri talningu.