kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Virðulegi forseti. Það er margt í lagarammanum okkar um kosningar sem þarfnast endurskoðunar. Sumt er þess eðlis að við getum lagað það með breytingum á kosningalögum en svo er annað sem kallar líka á breytingar á stjórnarskrá. Ég held að við þurfum aðeins að tala um þá staðreynd að við búum enn þá við fyrirkomulag þar sem það er Alþingi sjálft sem úrskurðar um gildi kosninga til Alþingis. Sú niðurstaða er ekki kæranleg til neins dómstóls. Hún er ekki kæranleg til neins óháðs úrskurðaraðila. Þetta er fyrirkomulag sem stenst ósköp einfaldlega ekki þær kröfur sem hafa þróast í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og þá er ég að tala um kröfur um rétt fólks til að taka þátt í frjálsum og lýðræðislegum kosningum og rétt fólks til að fá úrlausn óháðs aðila um lögmæti þeirra. Þetta er alveg skýrt af dómi sem yfirdeild Mannréttindadómstólsins kvað upp árið 2020 sem varðaði kosningadeilur í Belgíu.
Það er ekki að ástæðulausu sem Feneyjanefndin um stjórnskipunarmál hefur hvatt til þess að endanlegu úrskurðarvaldi um lögmæti kosninga verði komið fyrir hjá dómstólum. Til þess þarf að gera breytingar á stjórnarskrá en þá vandast málið. Það er nefnilega staðreynd að öllum stjórnlagaumbótum hefur verið haldið í flokkspólitískri gíslingu hér á Alþingi, í raun í meira en 20 ár. Ekki hefur stafkrók í stjórnarskránni verið breytt síðan árið 1999, ef frá er talið bráðabirgðaákvæði sem var samþykkt árið 2013 og var svo ekkert gert með og rann úr gildi 2017.
Nú gæti það gerst í annað sinn með stuttu millibili, með nokkurra ára millibili, að Ísland verði dæmt í Strassborg fyrir að uppfylla ekki lágmarkskröfur sem Evrópuríki gera hvert til annars um lýðræðislega stjórnarhætti, um sjálfstæða dómstóla, um, í stuttu máli, góða og frjálslynda stjórnskipan, og það er mjög alvarlegt. Það er löngu kominn tími til að rjúfa þessa kyrrstöðu og breyta stjórnarskránni í takt við réttmætar kröfur almennings, kröfur um virkara lýðræði, kröfur um að Ísland uppfylli þjóðréttarlegar skuldbindingar um rétt fólks til að fá úrlausn óháðs aðila um lögmæti kosninga og Alþingi verður að rísa undir þeirri ábyrgð. Þá er ekki síður mikilvægt að huga að algjöru grundvallarprinsippi um jafnt vægi atkvæða.
Nú er það þannig að jafnaðarmannaflokkar hafa alltaf barist fyrir tvennu; annars vegar bættum kjörum fólks og hins vegar almennum lýðréttindum umbjóðenda sinna. Framan af þessari öld var kosningarrétturinn auðvitað mál málanna. Það er athyglisvert, ef við skoðum söguna, hvernig jafnaðarmenn hafa litið á öll frávik frá jöfnum kosningarrétti sem skerðingu á mannréttindum. Þessi barátta hefur snúist um að tryggja öllum jafnan kosningarrétt óháð efnahag, óháð kynferði, óháð búsetu. Árið 1927 flutti Héðinn Valdimarsson stórmerkilegt frumvarp, kannski eitt merkilegasta frumvarp sem nokkur þingmaður hefur flutt einn síns liðs, ofboðslega framsækið frumvarp til stjórnskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá. Þetta snerist þá um að lækka kosningaaldur annars vegar niður í 21 ár og að þeim sem höfðu þegið af sveit sökum fátæktar yrði þá veittur kosningarréttur. Það sem á kannski mest erindi við okkur enn í dag er 2. gr. þessa frumvarps þar sem er kveðið á um að á Alþingi eigi sæti 25 þjóðkjörnir þingmenn sem kosnir séu hlutbundnum kosningum um land allt og sitji í einni málstofu. Í greinargerð þessa ágæta frumvarps segir m.a.:
„Þar sem kjördæmaskipun hefir að mestu verið haldið óbreyttri, er afleiðingin sú, að hver kjósandi í sumum kjördæmum hefir margföld áhrif á alþingiskosningar á við kjósanda, er búsettur er í öðrum kjördæmum, og þar með margföld áhrif á stjórn landsins í heild sinni. Eftir mannrjettindakenningum þeim, er þingræðið hvílir á, eiga allir fullorðnir menn í landinu að hafa jafnrjetti í þessum málum, og mun óvíða í siðuðum löndum sveigt svo langt frá því marki eins og hjer á landi. Þetta kemur og mjög mishart niður á stjettum þjóðfjelagsins, þar sem verkalýðurinn hefir safnast til sjávarins, og það er því mest verkalýðurinn, er geldur hinnar úreltu kjördæmaskipunar …“
Héðinn Valdimarsson leit sem sagt á kosningarréttinn sem algjört grundvallarmannréttindamál og ójafnt atkvæðavægi sem algjört brot á prinsippum um jafnræði fólks.
Auðvitað eru til ýmsar leiðir til að bæta úr þessu ástandi. Ein væri að breyta landinu öllu með einföldum stjórnarskrárbreytingum í eitt kjördæmi. Annað er í raun að fjölga jöfnunarþingmönnum. Ég man ekki betur en að þingmenn Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar, jafnvel fleiri flokka, hafi flutt mál um þetta, flutt breytingartillögu um þetta, á síðasta kjörtímabili, sem var felld með afgerandi hætti af þeim stjórnmálaflokkum sem njóta einmitt ágóðans af ójöfnu atkvæðavægi.
Svona rétt undir lokin þá held ég að þetta sé eitthvað sem við eigum að halda áfram að tala fyrir, berjast fyrir. Það er ýmislegt sem þarf að breyta í stjórnarskránni hvað varðar kosningar, hvað varðar framkvæmd lýðræðisins og kosningarrétt. Þetta er eitt af því.