152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[16:51]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Mjög áhugavert. Og þetta með kennitölurnar, maður þarf að flagga þeim við innkaup á hinum ýmsu hlutum og það er spurning í þágu hverra þessi þróun er. Þetta er áhugavert innlegg hjá hv. þingmanni en það er eitt sem gleymist líka í umræðunni og það er, í þokkabót við þessa meðvirkni, hversu auðtrúa við erum og tilbúin að stuðast fyrir hönd einstaklinga þegar verið er að tala um betrumbætur á einhverju kerfi. Kerfin sem eru í lagi, þeim er ekki síst ætlað að þjóna þeim sem vinna innan þeirra. Ég get nefnt nokkur nöfn sem hefðu gjarnan viljað að hlutirnir hefðu verið í fastari skorðum við tilteknar aðstæður í tilteknum kosningum í tilteknu kjördæmi. Það er ekki eins og þessi kerfi sé sett til höfuðs fólki sem ætlar að starfa innan þeirra, þau vernda þá einstaklinga líka.

Mig langar í seinni umferð að vísa aftur í reynslu hv. þingmanns af kosningaeftirliti af því nú erum við að fara í þessa endurskoðun og ég tek heils hugar undir það að þetta var unnið í of miklum flýti og ekki síst eiginlega innleiðingin, þar er brotalöm og við þurfum að huga betur að því almennt. En það er þetta með netkosningar. Erum við komin á þann stað að við getum fyrir alvöru farið að velta þeim möguleika upp? Það er sérkennilegt að vera að ræða þessi mál og þær brotalamir sem við höfum þekkt og aftur vísa ég í þá reynslu og raunar bara áfallið sem ég fékk við endurtalningu númer tvö í Norðvesturkjördæmi þegar enn voru að koma atkvæði upp úr röngum bunkum eða rangt talin eða eitthvað. Þetta er allt að því ólýsanlegt. Netkosningar er ekki fullkomnar. Það eru ákveðnir ágallar þar en þær eru til í margvíslegum útgáfum og ég hefði áhuga á að heyra hér undir lokin skoðun hv. þingmanns á því hvernig við gætum tekið skrefið í þá átt en gætt jafnframt að þeim hlutum sem okkur er annt um, (Forseti hringir.) þ.e. leyndinni og möguleikum á því, ef fólk vill ekki að neinn viti hvað það kaus, að það sé örugglega tryggt.