152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[16:56]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Mér fannst áhugavert að fylgjast með skoðanaskiptum og samtali hér áðan, rökræðum sem áttu sér stað á milli hv. þingmanna Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Hönnu Katrínar Friðriksson. Þar var m.a. komið inn á kosningaeftirlit og ágætt að nota tækifærið og nefna það hér, og ég ætla bara að tala um það í samhengi við þetta því að allt tengist þetta auðvitað, að ég var sjálfur við kosningaeftirlit í Rússlandi árið 2004 og það var mjög merkileg lífsreynsla og það kenndi manni svolítið holla lexíu. Þar var maður að fylgjast með kosningum hjá stórri þjóð þar sem lýðræðishefðin er ekki eins sterk og hjá okkur og maður sá þess merki alls staðar, bæði í framkvæmd kosninganna og í talningunni. Þótt við hefðum ekki orðið vör við eitthvert misferli á þeim stað nákvæmlega þar sem ég var við eftirlit, í borg sem heitir Izhevsk, þá voru engu að síður gerðar athugasemdir við eitt og annað þarna í kosningunum af hálfu ÖSE. Ég man að það var mikil lífsreynsla að fá að fylgjast með og sjá frá fyrstu hendi hvernig kosningar fara fram í ríki eins og Rússlandi á þessum tíma, hvað þetta var nýtt fyrir mörgum, hvað framkvæmd á mörgu var flókin og hvað þetta var einhvern veginn allt öðruvísi en það sem við eigum að venjast hérna á Íslandi. Ég man að það var í manni einhvers konar þakklæti og öryggistilfinning yfir því að við værum nú sem betur fer betur í sveit sett á Íslandi með okkar hefð þar, okkar fastmótaða, trygga og öfluga regluverk, að það væri alltaf traust á kosningum, að við værum aldrei að rífast um niðurstöður kosninganna, að lýðræðiskerfið hérna stæði föstum fótum. Þannig höfum við auðvitað viljað hafa þetta og þannig hefur þetta mestan part verið.

Mér finnst mjög ágætt að taka undir vangaveltur sem komu fram hér áðan einmitt um það að við eigum ekki að taka því sem gefnu og slá því föstu að hér sé alltaf allt í himnalagi. Auðvitað erum við með ofsalega nýlegt dæmi úr kosningunum síðast sem færa okkur heim sanninn um það að þegar við erum að ræða um kosningar eða lýðræðið með einhverjum hætti hér í þessum sal þá verðum við að vanda okkur. Auðvitað erum við núna í þeirri stöðu hér í þessu máli, af því að við erum að afgreiða þetta mál fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og það skiptir máli að það verði gert og við erum öll sammála um að það, að tíðindi gærdagsins setja okkur kannski í ákveðnar stellingar og við þurfum að hafa í huga ákveðin atriði þegar við höldum áfram með málið og umræðuna. Í fréttum í gær kom fram hjá lögreglustjóranum á Vesturlandi niðurstaða sem dettur inn í málið sem við erum með til meðferðar hér í þinginu, svona með óbeinum hætti getum við sagt. Ég ætla að fá að vísa í bréf sem lögreglustjórinn á Vesturlandi birti á vef sínum í dag. Þar vísar hann í kosningalögin sem tóku gildi 1. janúar 2022. Svo segir, með leyfi forseta:

„Að mati lögreglustjóra er ekki fjallað með jafn skýrum hætti um skyldu til innsiglunar kjörgagna líkt og var gert í þágildandi kosningalögum nr. 24/2000. Ekki er með beinum hætti fjallað um skyldu til innsiglunar kjörgagna að lokinni talningu í gildandi kosningalögum nr. 112/2021.“

Svo er haldið áfram:

„Í 1. mgr. 2. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 kemur fram að hafi refsilöggjöf breyst eftir að verknaður var framin, eigi að dæma eftir nýju lögunum. Það á bæði við um refsinæmi verknaðar og refsingu og á það við í þessu tilfelli.

Þar sem ekki er fjallað með beinum og skýrum hætti um skyldu til þess að innsigla kjörgögn að lokinni talningu í nýju kosningalögunum, ólíkt því sem var í eldri lögum, telur lögreglustjóri vafa vera til staðar um refsinæmi ætlaðs brots sakborninga. Þann vafa ber að túlka sakborningum í hag með vísan til þeirrar meginreglu sem kemur fram í 108. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.“

Það var með hliðsjón af þessu öllu sem lögreglustjóri komst að þeirri niðurstöðu að það sem fram væri komið um rannsókn málsins væri ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis og því var málið fellt niður. Þetta dettur inn í umfjöllun Alþingis í gær og fyrir vikið fór málið inn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem ég á sæti. Þar var fundað um málið í morgun og eðlilega tekin ákvörðun um það af öllum að fara þurfi svolítið nánar yfir þetta allt. Núna erum við kannski að einhverju leyti svolítið að takast á um spurninguna um það hvað eigi að vera í reglugerð og hvað eigi að vera í lögum. Það var verið að fara yfir það, og ég er kannski draga upp mjög einfaldaða mynd af þessu, að réttindin væru einhvern veginn tryggð í lögunum en nánari útfærsla væri þá í reglugerðinni. Ég tek eiginlega undir það sem kom fram hjá hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um að þetta þurfi að skoða alveg sérstaklega vel. Þegar við erum að tala t.d. um meðferð og meðhöndlun kjörgagna, hvernig eigi að umgangast þau, ganga frá og allt það stífa regluverk, þá megum við ekki kasta til höndum. Ég tek undir, og vona að ég sé að fara rétt með, áhyggjur hv. þingmannsins af því að gefa of mikið vald inn í reglugerð með það. Það er a.m.k. eitthvað sem mér finnst að við þurfum að fara vel yfir í umfjöllun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd núna á næstunni.

Auðvitað vekur þetta allt saman sem upp kom í gær upp óþægileg hugrenningatengsl um allt það sem gerðist í Borgarnesi eftir kosningarnar síðast. Það segir sig alveg sjálft að þegar við erum allt í einu komin með mál þar sem er verið að tala um innsigluð kjörgögn að lokinni talningu þá hljóta allar viðvörunarbjöllur að hringja. Mig langar aðeins að nefna það í þessu samhengi að ég var að tala áðan um að við hefðum í gegnum tíðina svolítið getað treyst kerfinu hérna og auðvitað er lýðræðið og það að við höfum traust á lýðræðinu, hinu lýðræðislega ferli og leikreglunum öllum, algjör grundvöllur þess samfélags sem við búum í í dag. Þar viljum við auðvitað litlu breyta. Þetta þurfum við að fara vel með. Við megum ekki taka þessu sem gefnu. Við þurfum að hlúa að þessu. Mér finnst vægast sagt mjög vont, og við erum auðvitað öll sammála um það í þessum sal, að það skuli koma upp mikið af vafamálum eftir kosningar, að ekki sé talað um af þeirri stærðargráðu sem var eftir síðustu kosningar. Ég get svo sem rakið það hér, þetta þurfti auðvitað alltaf allt saman að skoða og rannsaka, að það voru einhverjir 125 klukkutímar hjá undirbúningsnefnd kjörbréfa sem fór yfir þetta allt saman. Þetta mál var bara gríðarlegur prófsteinn á lýðræðið og eins og ég segi þá var allt í einu komið upp einhvers konar vantraust á gangverk lýðræðisins. Bæði vorum við farin að efast og velta fyrir okkur hvað hefði gerst þarna á kosninganótt við talninguna og síðan auðvitað þróaðist og þroskaðist umræðan upp í það að við fórum að velta fyrir okkur: Bíddu, hvað gerist svo í framhaldinu?

Hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson fór ágætlega yfir t.d. öll vafaatriðin sem tengdust því sem sneri að uppkosningu. Nú vill þannig til að ég er ekki sammála þeirri niðurstöðu sem hann og ég hygg fleiri þingmenn Pírata komust að í því máli. En það er einmitt punkturinn minn: Við erum ekki sammála um það hvað gerist þegar þetta ákvæði kosningalaganna er allt í einu undir hjá okkur. Það er allur þessi vafi, ekki þá bara á framkvæmd kosninganna heldur líka allur vafinn í framhaldinu um það hvernig ætti að túlka hinar ýmsu greinar þeirra og ekki síður bara þessi mikla umræða sem fór í gang um fyrirkomulag á mörgu öðru. Ég staldraði t.d. mjög mikið við eitt atriði, kannski vegna þess að það sneri á ákveðinn hátt að mér persónulega. Það var þetta með að vera allt í einu settur í þá stöðu sem þingmaður, nýkjörinn þingmaður, að það leikur vafi á gildi kjörbréfs þingmanns en hann á engu að síður að greiða atkvæði um gildi þess kjörbréfs. Þetta er auðvitað mjög sérstakt fyrirkomulag. Mér finnst það ekki standast neinar hlutleysisreglur og finnst að það hljóti eiginlega liggja í augum uppi að ef það leikur vafi á kjörbréfi einhvers þingmanns þá er hann náttúrlega u.þ.b. síðasti jarðarbúinn sem á að vera í stöðu til að greiða atkvæði um það hvort kjörbréfið sé gilt. Það var eitt af þessum atriðum sem við vorum svolítið að benda á og tala um í framhaldi af kosningunum síðast. Mig langar aftur að vitna efnislega til þess sem kom fram í ræðu hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Hún nefndi að við værum auðvitað að velta fyrir okkur síðustu kosningum til að koma í veg fyrir að leikurinn endurtæki sig í næstu kosningum og kosningunum þar á eftir. Þess vegna er mjög brýnt að fara mjög vel yfir þetta mál og taka svolítið góða umræðu um þetta, bæði hér í þingsalnum og ekki síður á vettvangi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, eins og ég veit að auðvitað verður gert og er búið að ákveða að verði.

Ég get ekki látið hjá líða, komandi úr þeim flokki sem ég er í og hafandi þá skoðun sem ég hef, að taka undir vangaveltur sem fram komu hjá hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni áðan þar sem hann var að tala um ákveðna hluti í okkar stjórnskipan og í stjórnarskránni okkar sem er undir í öllu þessu máli af því að við erum með svolítið flókið kosningakerfi sem kemur m.a. til út af því að við erum að mínu mati með mjög rangt fyrirkomulag þegar kemur að því að láta alla kjósendur í landinu sitja við sama borð — og það er misvægi atkvæða. Ég ætla svo sem ekki í því samhengi að tala bara um misjafnt vægi atkvæða eftir því hvar fólk býr á landinu. Það má auðvitað líka taka þetta út frá því að kosningakerfið okkar er þannig að við höfum ekki fengið samræmi á milli þeirra sem greiddu atkvæði í kosningunum og niðurstöðunnar og að það endurspegli síðan þingstyrk flokka hér í þinginu. Það finnst mér auðvitað enn alvarlegra að því leytinu til að ég get alveg skilið einhver byggðasjónarmið sem rök fyrir misvægi atkvæða þótt ég sé ekki sammála því en það að við séum með kerfi sem gerir það að verkum við kjósum og það kemur einhver niðurstaða upp úr kjörkössunum og sú niðurstaða endurspeglist ekki einu sinni í því hver þingstyrkur flokka er á Alþingi eftir þessar kosningar, það finnst mér alveg galið og sérstaklega ámælisvert og alvarlegt. Það hafa nú aldeilis sérfræðingar bent á að auðvelt sé að laga þetta. Það hefur verið gerð tilraun til þess en það hefur einhvern veginn verið slegið út af borðinu og farið með það eins og það sé eitthvað léttvægt. En eftir síðustu kosningar fékk nú bara Framsóknarflokkurinn t.d. einu sæti of mikið og Sjálfstæðisflokkurinn einu sæti of lítið. Þetta getum við auðvitað ekki haft. Ég get skilið þau rök að einhver byggðasjónarmið séu á bak við það að atkvæðavægið sé misjafnt eftir því hvar fólk býr á landinu. Ég er hjartanlega ósammála því en ég skil hvaðan fólk er að koma. En það að kosningaútkoma endurspeglist síðan ekki beint í þingstyrk flokka eftir lýðræðislegar kosningar er algerlega óskiljanlegt, ekki síst vegna þess að það kallar ekki á neina stjórnarskrárbreytingu að fara í það allt saman.

Mig langar bara rétt í lokin að undirstrika þetta sem ég er að segja: Við eigum ekki að ganga að því sem gefnu að það sé alltaf allt í lagi með lýðræðið okkar í landinu. Við þurfum að hlúa að því. Við þurfum að halda vöku okkar og þegar koma upp svona atvik eins og gerðust eftir kosningarnar síðast og við sjáum síðan þessa niðurstöðu hjá lögreglustjóranum á Vesturlandi í gær, þar sem kemur fram þetta misræmi á milli kosningalaga sem þá giltu og þeirra sem nú gilda, þá hljótum við auðvitað að taka þá umræðu svolítið langt og vanda okkur alveg feikilega mikið í framhaldinu. Það að vafi leiki á úrslitum kosninga eftir kosningar er óskaplega vont. Það er líka óskaplega óþægilegt og vont þegar við erum að fjalla um þessa hluti í löggjöf að við þurfum að vera að plástra eitthvað sem mönnum sást yfir eða fara oft í þessa hluti, einfaldlega vegna þess að ásýndin af því er ekki traustvekjandi. Það er bara þannig. Það er ekki nóg að lýðræðið virki, það verður líka að virðast virka. Það er eins með það þegar við setjum lög um kosningarnar. Ef við erum alltaf að plástra og setja einhverja heftiplástra yfir eitthvað sem var misfarið með eða stenst ekki þá gerir það eitt og sér það að verkum að fólk getur farið að vantreysta kerfinu. Mér finnst að við eigum að taka það alvarlega og við eigum að gefa okkur tíma í að fara vel og vandlega yfir þessi mál.