152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[17:14]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur kærlega fyrir andsvarið og spurninguna og hugleiðingarnar allar í þessu. Ég fagna því að við séum að ræða þetta svolítið virkt hér núna við þetta tilefni. Ég hrekk auðvitað alltaf aðeins í gang þegar talað er um blaðamenn og ekki síst þegar nefnt er orðið ofsóknir í því samhengi. Það er eins með lýðræðið okkar eins og með blaðamennskuna, við verðum að átta okkur á því að við getum ekki gengið að hlutunum sem vísum. Það að við séum friðelskandi þjóð, að við séum lýðræðisþjóð og þjóð sem býr við tjáningarfrelsi er eitt og sér ekki trygging fyrir því að allt fari eins og við ætlum og viljum. Nýlegt dæmi um það hvernig gengið var gegn blaðamönnum í tengslum við einn anga hins svokallaða Samherjamáls er auðvitað eitt af því sem setur okkur í þær stellingar að við eigum aldrei að ganga að neinu gefnu þegar kemur að því hvernig löggjafarvaldið hugsar lög og síðan hvernig framkvæmdarvaldið fer með valdið og jafnvel fer að mínu mati, eins og staðan er núna, einhvers konar hjáleiðir til að sækja blaðamenn til saka eða a.m.k. gefa þeim réttarstöðu sakbornings.

En almennt varðandi spurninguna sjálfa um Rússland og veru mína þar þá er náttúrlega nokkuð langt um liðið síðan þetta var en hún situr enn þá sterkt í mér, þessi tilfinning, svo ég endurtaki það, hvað það var áhugavert að fylgjast með þjóð sem hafði ekki þessa miklu sterku lýðræðishefð og við höfum ganga að kjörborðinu og ekki síst hvernig talningin fór fram og síðan auðvitað eftirleikurinn þar sem ítarlega var farið yfir allt saman og gerðar athugasemdir við margt í ferli kosninganna. (Forseti hringir.) Þessi upplifun, að koma frá Íslandi og vera þarna í þessum aðstæðum, orkaði sterkt á mig og ég var mjög þakklátur fyrir það að búa á okkar landi (Forseti hringir.) og hefði þá aldrei trúað því að við ættum eftir að upplifa eitthvað því líku sem gerðist í Borgarnesi, (Forseti hringir.) þótt ég sé auðvitað ekki að líkja því við stjórnarfarið í Rússlandi.

(Forseti (BLG): Forseti minnir á ræðutímann.)