152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[17:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það hefur verið mjög fróðlegt að hlusta á hv. þm. Sigmar Guðmundsson sem bæði hefur farið í kosningaeftirlit til ríkis sem við svona í yfirlæti okkar leyfum okkur kannski að efast um að sé raunverulegt lýðræðisríki en situr líka í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem hefur verið að fjalla um það mál sem við erum með hér í dag.

Það vakti óneitanlega athygli og ögn af skelfingu í gær þegar kom í ljós að það hefðu verið gerð mistök, að því er virðist, við afgreiðslu kosningalaganna sem tóku gildi um síðustu áramót þegar það er einhver vafi á um innsiglun og hvaða afleiðingar skortur á innsiglum hefur og hvernig beri að bregðast við því. Ég velti því aðeins fyrir mér, af því að nú hef ég ekki séð neina breytingartillögu frá nefndinni, hvorki meiri hluta né bara nefndinni sjálfri, hvort það hafi ekkert verið rætt í nefndinni. Ég átta mig á því að þetta mál sem við erum að fjalla um núna, það verður að samþykkja það í dag út af sveitarstjórnarkosningunum en er þetta svo ótrúlega flókið verk að við getum ekki sett inn þennan varnagla vegna kosninganna í vor? Ég segi þetta í rauninni af gefnu tilefni af því að ég hef áhyggjur af því að ekki verði farið í þær breytingar sem við þurfum að gera til að tryggja að kosningarnar í vor fari fram með þeim hætti sem við verðum að viðhafa.