152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[17:32]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég held að þegar við erum að ræða það frumvarp sem hér er til meðferðar svo nálægt í tíma við nýliðnar kosningar og þau vandamál sem þar komu upp sé einmitt full ástæða til að ræða kosningalögin og framkvæmdina heildstætt. Mig langaði í því sambandi að fjalla um að gildandi kosningakerfi okkar hér á landi getur og hefur raunar skilað niðurstöðu sem endurspeglar ekki að fullu vilja kjósenda og fjalla þá um spurninguna: Hvaða þýðingu hafa atkvæði kjósenda? Og vitaskuld kannski fyrst í samhengi við þá ótrúlegu hringekju sem fór af stað við endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi, áhrifin sem endurtalningin hafði á önnur kjördæmi, allt finnst mér þetta undirstrika gallana í kosningakerfinu. Þetta er auðvitað gömul saga og ný og dramatíkin varð okkur kannski öllum ljós einmitt þegar ótrúlegar afleiðingar urðu ljósar. Sem femínisti myndi ég segja að það hafi verið einhvern veginn svo grátlega táknrænt þegar glerþakið brotnaði en það reyndist síðan náttúrlega ekki vera svo, það var ein birtingarmyndin, og síðan þetta traust og þessi ásýnd sem hér hefur verið fjallað um í dag sem beið auðvitað hnekki.

Mig langaði að nefna að eftir alþingiskosningarnar 2013, 2016, 2017, og aftur eftir síðustu kosningar, var styrkur flokka á Alþingi ekki í samræmi við fylgi þeirra og ákveðnir flokkar hafa trekk í trekk fengið fleiri þingmenn kjörna en atkvæðafjöldi, stuðningur kjósenda, raunverulega tryggði þeim. Þetta, og þar held ég að ég sé að segja hið augljósa, felur auðvitað í sér að þingið endurspeglar ekki að fullu vilja kjósenda. Í því sambandi langar mig að tala um það, núna þegar við erum að leiðrétta eða vinna þetta frumvarp, að margir furða sig á því hvers vegna þessi skekkja hefur ekki verið leiðrétt að fullu. Þetta er skiljanleg gagnrýni og réttmæt en hún á ekki við um allt þingið. Hún á við um ríkisstjórnarflokkana því það var lögð fram tillaga til að taka á þessu réttlæti. Við lögðum fram tillögu saman, við Björn Leví Gunnarsson og Guðmundur Andri Thorsson, eftir að frumvarp um ný kosningalög hafði verið lagt fram af þáverandi forseta þingsins, Steingrími J. Sigfússyni, þar sem ekki var gerð nein einasta tilraun til að tryggja að þingstyrkur flokka yrði í betra samræmi við vilja kjósenda.

Mér fannst svo sérstakt að upplifa það á eigin skinni að þrátt fyrir að frumvarpið um kosningalögin fengi fína málsmeðferð í þinginu vantaði engu að síður einhverra hluta vegna alveg að tekið væri á þessu grundvallaratriði af hálfu meiri hlutans, af hálfu ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Það var ekki þannig að þingið hefði ekki tíma eða þetta atriði gleymdist. Umræða fór fram um þetta atriði og breytingartillaga okkar þriggja, fulltrúa þriggja flokka í stjórnarandstöðu, var felld. Hún var felld í atkvæðagreiðslu af fulltrúum meiri hlutans og raunar Miðflokks þannig að pólitískar línur um þetta grundvallarmál og réttlætismál urðu heldur betur skýrar og ljósar í atkvæðagreiðslu. Mér finnst ástæða til að minna á það hér í þessum sal að niðurstaðan felur í sér stuðning meiri hlutans við það að áfram ríki gríðarlegt ójafnvægi milli kjósenda.

Tillögurnar sem lágu fyrir þinginu voru tvíþættar og ég ætla að leyfa mér að fara aðeins yfir þær. Þetta var annars vegar tillaga um fjölgun jöfnunarsæta til að tryggja þá að flokkar fengju þingmenn í sem mestu samræmi við fjölda atkvæða, og hins vegar tillaga um jöfnun atkvæðavægis sem er þá á milli kjördæma. Það er þá breytingartillaga sem stuðlar að auknu jafnrétti milli kjósenda. Áður hafði þingflokkur Viðreisnar lagt fram sérstakt frumvarp um jafnara vægi atkvæða en það komst ekkert áleiðis, komst ekki út úr nefnd, sem eru nú nokkuð klassísk örlög frumvarpa minni hlutans.

Ég átta mig á því að þessi umræða er viðkvæm en það er þrátt fyrir allt staðreynd að jafnt vægi atkvæða eftir búsetu telst til mannréttinda, t.d. að mati ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, og Feneyjanefndarinnar. Það vill gleymast í þessari umræðu að hér er um mannréttindamál að ræða. Auðvitað leiðir það af skiptingu landa og ríkja í kjördæmi að vægi atkvæða verður aldrei hnífjafnt og það er heldur ekki markmiðið. Spurningin snýst einfaldlega um það hversu mikið ójafnvægið megi vera og hversu langt megi ganga í þessu ójafnvægi til að fara ekki að brjóta gegn mannréttindum fólks.

Talað hefur verið um að misvægi milli kjördæma geti verið um 10–15%. Hér á Íslandi er munurinn næstum 100% þar sem hann er mestur. Stjórnarskráin gerir ráð fyrir að styrkur þingflokka sé í samræmi við fylgi þeirra í landinu og það er síðan hlutverk Alþingis að útfæra þetta markmið í kosningalögum. Það er þess vegna sérstakt að þegar heildarfrumvarp um ný kosningalög var til meðferðar á Alþingi þá var það algjörlega skýrt af hálfu meiri hlutans, af hálfu þessara þriggja flokka, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna, að hér átti ekki að hreyfa við neinu þrátt fyrir að sjálf stjórnarskráin tali um að styrkur þingflokka eigi að vera í samræmi við fylgi þeirra í landinu. Alþingi fær það hlutverk að útfæra þetta. Ríkisstjórnin kaus að gera það ekki.

Eins og ég segi, umræðan um jafnt vægi atkvæða er viðkvæm en þar finnst mér líka skipta máli að það verði að líta til þess að við erum að ræða um tvennt. Við erum annars vegar að ræða um jafnt vægi flokkanna og hins vegar er verið að ræða um atkvæðavægi kjósenda. Kjósendur á landsbyggðinni hafa skiljanlega áhyggjur af sinni stöðu. Ég hef ríka samúð með þeim áhyggjum en atkvæðavægi þeirra myndi ekki breytast þótt tryggt væri að þingmenn hvers flokks yrðu í sem mestu samræmi við fylgi flokksins. Það er hitt málið, varðandi jafnt vægi atkvæða eftir búsetu, sem myndi fækka þingmönnum landsbyggðarinnar eitthvað, en ekki eins mikið og talað er um og látið er að liggja í umræðunni. Þar finnst mér ég stundum greina ákveðna gaslýsingu sem er ekkert óskyld þeirri umræðu sem fer af stað þegar við ræðum um sjávarútveginn, þegar er farið að tala um að fólk vilji ekki fiskveiðistjórnarkerfi af því að við höfum skoðun á gjaldtökunni.

Stundum er talað eins og fullur jöfnuður eftir búsetu myndi í reynd þýða að allir þingmenn landsins kæmu af suðvesturhorninu. Stenst sú staðhæfing skoðun? Fyrir það fyrsta yrði slík niðurstaða í mínum huga algerlega óverjandi með tilliti til mannréttindasjónarmiða. En það er engin ástæða til að ætla að svo verði. Hvers vegna? Vegna þess að stjórnarskráin mælir fyrir um það, æðsta réttarheimild landsins, að hvert kjördæmi skuli eiga a.m.k. sex kjördæmakjörna þingmenn. Öll kjördæmi landsins eru varin með þeim hætti í okkar æðstu réttarheimild að þingmenn kjördæmis geta aldrei orðið færri en sex.

Nú eru þingmenn Norðvesturkjördæmis átta. Ójafnvægi atkvæða er meira en 100% milli Norðvestur- og Suðvesturkjördæmis. Fyrir næstu kosningar liggur fyrir að þingmönnum Norðvesturkjördæmis verði fækkað úr sjö í samræmi við stjórnarskrá landsins. Yrði farið í að jafna leikinn að fullu innan þess ramma sem stjórnarskráin mælir fyrir um, hvað gerist þá? Þingmennirnir yrðu sex, þeim myndi fækka um einn til viðbótar, þannig að það er auðvitað af og frá og markviss og viljandi afvegaleiðing á þessari umræðu og þessu réttlætismáli að tala með þeim hætti að einstaka landsbyggðarkjördæmi ættu sér enga málsvara hér á þingi.

Hvers vegna skiptir þetta máli í þessari umræðu núna? Ég er reyndar þeirrar skoðunar að við ættum að vera að ræða þetta hér í þessum þingsal alla daga þangað til þetta verður leiðrétt. Kjósendur, t.d. í Suðvesturkjördæmi, búa við þann ólýðræðislega veruleika að atkvæði þeirra er í reynd hálft og fullur jöfnuður eftir búsetu kjósenda hefði þau áhrif að þingmenn landsbyggðarinnar yrðu 23 eða 24 talsins í stað 27. Þessi staða getur ekki falið það í sér á nokkurn einasta máta að landsbyggðin ætti sér ekki lengur sérstaka talsmenn á þingi. Raunar held ég að það yrði okkur öllum hollt að hugsa sem svo að við séum öll þingmenn landsbyggðarinnar og öll þingmenn höfuðborgarinnar, við erum þingmenn Íslands.

Ég kom hingað upp bara til að minna á það, af því að við vorum jú að afgreiða þetta frumvarp síðasta vor, eftir mikla og fína vinnu, að þessi umræða um jafnt vægi atkvæða fór sannarlega fram í þinginu. Við sáum svo sannarlega hver afstaða einstakra þingmanna, ráðherra og stjórnmálaflokka til þessa máls er. Ég vildi árétta það, af því að mér finnst gleymast í umræðunni, að ákvæði stjórnarskrárinnar gerir okkur kleift að jafna leikinn gagnvart kjósendum, þó með þeirri vörn fyrir kjördæmin öll í landinu, að þingmenn hvers kjördæmis verði aldrei færri en sex talsins, að jafnt vægi atkvæða snúist um það hversu mikill munurinn á atkvæðavæginu megi vera. Tillögur um að lagfæra þetta óréttlæti lágu fyrir í vor. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír höfnuðu því og greiddu atkvæði með því að viðhalda þessu ójafnvægi. Hverju skilar það? Enn og aftur þeim niðurstöðum að vilji kjósenda er ekki enn að öllu leyti virtur þegar við förum í það að úthluta þingsætum til flokkanna að loknum kosningum. Það er óheilbrigt.