kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er honum sammála um það að mér fannst stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í vinnu sinni við þetta frumvarp vinna góða vinnu og ég var ánægð með það að formaður — eða formenn nefndarinnar, ég held að þeir hafi verið tveir á tímabilinu ef mig misminnir ekki — lagði mikinn metnað í að þetta mál fengi einmitt tímann með sér, góða og efnismikla umræðu og umfjöllun. Eins og hv. þingmaður nefnir einmitt var eitt af kjarnastefjunum þetta atriði með að leiða vilja kjósandans í ljós og auka aðgengi, að gera fólki auðveldara fyrir og auðveldara um vik að kjósa. Við þekkjum það jú hvernig tölurnar eru á Íslandi og um heiminn allan varðandi þátttöku í kosningum. En þetta var hin þögla undantekning.
Hv. þingmaður man eflaust eftir því líka að þetta atriði, um jafnt vægi atkvæða, var aldrei rætt af hálfu meiri hlutans. Fyrir nefndina komu umsagnaraðilar sem flögguðu því og spurðu: Hvers vegna er ekki verið að ræða þetta mál? Ég er hv. þingmanni líka sammála um það að einmitt hið tæknilega reyndist síðan vera þrælpólitískt, rammpólitískt. Auðvitað spegla reglurnar einhverja hugmyndafræði, reglurnar spegla einhvern vilja og viljinn var á sínum tíma sá að verja kjördæmin og um leið að verja vilja kjósandans. Síðan hefur þetta ójafnvægi orðið dramatískt og í ranga átt en regluverkið þjónar áfram sama viljanum, (Forseti hringir.) að spegla afstöðu meiri hlutans.