kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Herra forseti. Ég held að þegar upp er staðið séu kosningalög kannski bara altæknileg en það er líka pólitíkin í þeim. Skýrustu dæmin sem við þekkjum eru aðgangshindranir sem eru reistar t.d. í Bandaríkjunum sem eru bara tæknilegar hindranir sem verða þess valdandi að ákveðnir hópar komast síður á kjörstað. Þetta eru yfirleitt tekjulágir, þetta er yfirleitt fólk sem ekki er hvítt, þetta er fólk sem er ekki í sterkri stöðu í samfélaginu. Í Bandaríkjunum er þessu fólki ekki meinað að kjósa en því er gert dálítið tæknilega erfitt að gera það. Þess vegna er svo fallegt í lögunum okkar hvað löggjafinn seilist langt til að hvert einasta atkvæði telji.
Mig langar að nefna, eins og ég hef gert áður, uppáhaldsákvæðið mitt í þessum lögum, sem var líka uppáhaldsákvæðið mitt í gömlu lögunum, af því að það hélt sér. Það er bráðabirgðaákvæði I sem fjallar um réttindi fólks sem var danskir ríkisborgarar á Íslandi þegar Ísland hlaut sjálfstæði frá Danmörku. Þeir einstaklingar héldu hér réttindum eins og þeir væru íslenskir ríkisborgarar að vissu leyti. Það var hluti af skilnaðarsamningnum á milli landanna. Þetta fólk hefur kosningarrétt til jafns við íslenska ríkisborgara sem er mjög óvanalegt. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá voru árið 2019 þrír kjósendur sem þetta ákvæði átti við um. Við erum með ákvæði í kosningalögum sem nær til þriggja kjósenda. Þau myndu passa hér. En auðvitað erum við með þetta ákvæði (Forseti hringir.) af því að hvert einasta atkvæði skiptir máli.