kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Frú forseti. Ég held að skemmtilegustu fréttirnar sem ég les af sjálfum mér, svo að ég byrji á sjálfhverfu nótunum, séu þær sem birtast í Sunnlenska fréttablaðinu sem hefjast alltaf á orðunum: Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður frá Hjarðarbóli í Ölfusi. Við erum nefnilega öll með rætur út um allt. Sjálfur ólst ég upp í sveit. Hv. þingmaður og Garðbæingurinn er með rætur vestur á firði. Við erum of lítið land til að við höfum efni á því að vera með einhvern hrepparíg. Við eigum að geta unnið saman en við þurfum líka að horfast í augu við að það hefur ekki gengið nógu vel og það þrátt fyrir skakkt atkvæðavægi. Þó að Vestfirðir hafi áratugum saman fengið umframfjölda þingmanna hefur nú ekki blásið byrlega um það hvernig ríkið sinnir þjónustu við þann landshluta síðustu áratugina, eiginlega bara allt í þveröfuga átt. Það er ekki allt fengið með þingmönnum kjördæmisins ef þeir síðan breyta ekkert mjög miklu varðandi það hvernig kjördæminu gengur.
Full ástæða til að láta á það reyna hvort þingið í dag sé betur stemmt fyrir því að auka jöfnuð í kosningakerfinu? Jú, ég held við gætum alveg látið á það reyna en ég velti því fyrir mér hvort við ættum kannski, til að minnka kvölina og auðvelda völina fyrir þingmenn sem gátu kannski skýlt sér á bak við að þetta hafi verið ein atkvæðagreiðsla um þessi tvö atriði — Ólafur Harðarson benti á það í framhaldinu — að láta greiða atkvæði um það í tvennu lagi, annars vegar jöfnuð á milli flokka, sem við hljótum öll að vera sammála um, (Forseti hringir.) og hins vegar jöfnuð á milli kjördæma, sem ég get alveg skilið (Forseti hringir.) að fólk eigi erfiðara með.