152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[18:44]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að þakka hæstv. forseta fyrir að bregðast við ósk minni um að taka mál um réttindi sjúklinga, beitingu nauðungar, af dagskrá. Ég lagði þetta mál fram sem viðbrögð við OPCAT-skýrslu umboðsmanns Alþingis, eins og hv. þingheimur þekkir og ábendingum um skort á lagastoð eins og þar koma fram. En í 1. umr. um þetta mál hér í gær heyrði ég líka ákall Alþingis, ekki síst um aukið samráð við notendur þjónustunnar, sjúklinga og samtök þeirra á breiðu sviði. Ég vil því tilkynna hæstv. forseta að ég afturkalla málið og tek það með í ráðuneytið og mun boða samráð á breiðum grunni, ekki síst við notendur þjónustunnar, við sjúklinga og samtök þeirra.