152. löggjafarþing — 52. fundur, 15. mars 2022.
um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég kem hingað upp til að hrósa hæstv. heilbrigðisráðherra. Þetta var vel gert. Það er alltaf gott þegar fólk sér að sér og það er sérstaklega virðingarvert þegar um er að ræða ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Ég vil bara endurtaka hrós til hæstv. heilbrigðisráðherra og skora á hann að haft verði alvörusamráð við sjúklinga, aðstandendur og hagsmunaaðila sem gæta að réttindum sjúklinga.