152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[18:47]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég vil líkt og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir þakka ráðherra fyrir að hafa hlustað á okkur í gærkvöld og kannski líka í dag þegar við fréttum að málið hefði verið tekið af dagskrá án þess að það lægi fyrir hver afdrif þess yrðu. Það er gott að fá þetta á hreint, ekki bara fyrir okkur sem þurfum að skipuleggja störfin fram undan heldur fyrir fólkið sem þetta mál snertir beint, hagsmunasamtök sjúklinga, fólkið sem er að berjast fyrir mannréttindum sem, eins og kemur fram hjá umboðsmanni Alþingis, eru brotin á fólki þegar nauðung er beitt í heilbrigðiskerfinu okkar. Það er eitthvað sem ég vona að við getum skilið við sem fyrst og til að við náum því þá þarf auðvitað að hafa þetta samráð, sem ég fagna svo sannarlega að ráðherra ætli að hafa og þó fyrr hefði verið.