um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég er hér í sömu erindagjörðum. Ég taldi ástæðu til að koma upp og þakka hæstv. heilbrigðisráðherra sérstaklega fyrir þetta skref, fyrir að taka frumvarpið til baka og kalla fólk að borðinu til eiginlegs og efnislegs samráðs. Það er alltaf af hinu góða að gera það, ekki síst í ljósi þeirra hagsmuna sem hér eru að baki og undirliggjandi, þ.e. í ljósi þess hve málið er viðkvæmt í eðli sínu. Það er mikill sársauki í þessum málum og ég held að það skipti miklu máli, til þess að velferðarnefnd geti í kjölfarið tekið við málinu og unnið það vel og vandlega, að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi þennan háttinn á. Ég er honum afar þakklát fyrir það.