um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil ítreka þakkir mínar eins og aðrir hafa gert hér til hæstv. heilbrigðisráðherra. Mér finnst hann maður að meiri en ég veit það líka, þekkjandi hann ágætlega, að hann vill vanda sig í þessu verkefni. Þetta er gríðarlega mikilvægt verkefni. Það eru viðkvæmir hópar sem eru undir. Mér finnst það mikið fagnaðarefni að hann skuli einmitt draga málið til baka til þess að vinna það betur í þágu nákvæmlega þeirra radda sem voru að hrópa á okkur þingmenn og biðja um hjálp. Það var ákall um hjálp. Mér finnst hæstv. ráðherra hafa sýnt mikinn myndugleika og skilning með því að bregðast við með þessum hætti. En um leið vil ég líka segja, svo að ég hrósi honum til viðbótar, að mér finnst gott að þetta sé tilkynnt af hálfu ráðherra hér úr þessum ræðustóli. Það skiptir líka svo miklu máli upp á ákveðna virðingu gagnvart þinginu og þessu samtali sem við þingmenn þráum svo gjarnan við hæstv. ríkisstjórn eða ráðherra í ríkisstjórn. Ég vil líka hrósa hæstv. ráðherra fyrir það og mér finnst þetta vita á gott, ekki síst fyrir það fólk sem við öll viljum vinna vel og betur fyrir.