um fundarstjórn.
Forseti. Já, ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að taka þetta mál til baka og endurskoða það. Ég er sammála hv. þm. Halldóru Mogensen. Ég vona að þetta verði tekið til algjörrar heildarendurskoðunar og að það verði vonandi niðurstaðan að við getum farið inn í nauðungarlaust Ísland, að við finnum nýjar aðferðir til þess að hjálpa fólki sem hefur það hvað verst í okkar samfélagi. Til þess erum við hér. Við viljum finna bestu aðferðirnar. Við viljum vera upplýst um það sem við erum að gera og vera í samráði við notendur, auðvitað fyrst og fremst notendur en líka fagfólk og einnig þarf að leita á önnur mið. Hvað er verið að gera annars staðar, hvað virkar? Það þarf líka taka tillit til þess hvaða áhrif það hefur á einstaklinginn að vera beittur nauðung og hver fórnarkostnaðurinn er fyrir samfélagið að beita nauðung.