landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Skimanir bjarga mannslífum og sem betur fer höfum við Íslendingar í áratugi verið að skima fyrir algengustu tegundum krabbameins hjá konum, svo sem brjósta- og leghálskrabbameini. Fyrr á þessu þingári óskaði ég eftir tölum um það hversu margir væru að mæta í þær skimanir sem í boði eru og kom þar m.a. fram að mikil fækkun hefði orðið hvað varðar það prósentuhlutfall af konum sem boðaðar eru í leghálsskimanir. Árið 2007 mættu um 75% kvenna þegar þær voru boðaðar en sú tala fór niður í 66% árið 2020. Á sama tíma lengdist sá tími sem það tók að fá niðurstöður úr skimunum, fór í það að vera allt að 35 virkir dagar en viðmiðunartíminn var 15 virkir dagar, samkvæmt svari ráðuneytisins.
Mig langar að vita hvað hæstv. ráðherra væri að skoða varðandi það að byggja aftur upp traust hjá konum svo að þær mæti í skimanir og varðandi það að niðurstöður komi hraðar og betur en þær hafa gert hingað til.