152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[19:05]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir þessa ágætu fyrirspurn og taka undir með honum um mikilvægi skimana og forvarna sem þeim tengjast. Ég veit ekki hvernig á að orða það en það urðu ákveðin skil, skarð fyrir skildi, sem birtist í þeim tölum sem hv. þingmaður fór hér yfir og ég kannast við fyrirspurn hans. Ég held að við þurfum einmitt að leggja áherslu á það að öryggiskennd er sennilega verðmætasta hugtakið sem við eigum í heilbrigðisþjónustu og ég held að við þurfum alltaf að hafa það í huga að byggja upp það traust sem hv. þingmaður kemur hér inn á. Auðvitað þurfum við aðeins að leyfa tímanum að líða og ná vel utan um þetta og ég fæ ekki aðrar upplýsingar en að þessi mál séu að komast í betri farveg. Það er óskandi að þessar tölur allar verði betri þegar fram í sækir og ég legg sömuleiðis áherslu á að við förum að hefja hér af krafti ristilskimanir.