landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð svör. Já, við þurfum að vinna saman í því að byggja upp traust. Það hefur verið rætt svolítið um það í samfélaginu að settar séu viðmiðanir um aldur og annað, t.d. að einungis 50 ára og eldri séu boðaðir í skimanir. Ég man sérstaklega eftir herferð sem farið var í fyrir tæpu ári þar sem konur undir fertugu sem höfðu fengið krabbamein bentu á að krabbamein í brjóstum og krabbamein í leghálsi geta komið fram mun fyrr en gert er ráð fyrir varðandi skimanirnar. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort horft sé til þess að opna meira fyrir það að yngri konur geti farið í slíkar skimanir, sérstaklega þar sem ættarsaga er um slíkt.