152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[19:08]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinni spurninguna. Hún er mjög mikilvæg í þessu samhengi skimana, þ.e. við hvaða aldur eigi að miða. Þessi umræða hefur farið fram í gegnum þessa sögu okkar af skimunum og 40 ára aldursviðmið jafnvel verið til umræðu. Svo eru kenningar sem segja að 50 ár sé jafnframt gott viðmið. Ég kannast við þessar tölur og ég hef lesið sitthvað um þetta. En ég held að staðan sé sú núna að við séum að tala um — ég er ekki með þessar tölur fyrir framan mig — 50 ára viðmið en stefnt sé að því að fara neðar í aldri. Kannski er einhver með þessar upplýsingar á takteinum og kannski finn ég þær hér síðar, en ég er með þetta svona í kollinum.