landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna á þessu máli. Ég held að það sé mjög gott að við séum með skimunarskrá til þess að heilbrigðisyfirvöld hafi einhvers konar yfirsýn yfir þjónustu sem verið er að veita og útkomu úr þjónustu sem verið er að veita. Af því að við höfum svolítið mikið verið að ræða geðheilbrigðismál að undanförnu þá velti ég fyrir mér hvort við ættum mögulega að útvíkka eftirlit stjórnvalda með heilbrigðisþjónustu sem er verið að veita fyrst Persónuvernd segir að þetta sé í góðu lagi af því að það sé í þágu sjúklinga að vera með einhvers konar skráningu á þessu. Í gær kom fram hér í umræðunni á Alþingi að það sé í rauninni engin eftirfylgni í heilbrigðiskerfinu með þeim sem koma inn vegna sjálfsvígstilrauna eða eru í sjálfsvígshættu. Þá veltir maður fyrir sér hvort það sé einhver yfirsýn yfir það, ekki bara tölur á blaði heldur raunverulega hvaða árangur við erum að sjá af margvíslegri heilbrigðisþjónustu, ef svo má segja, hvað þetta varðar. Gætum við útvíkkað skrár þannig að við höfum eftirfylgni og sjáum hvað er verið að veita og hvar við getum gert betur?