152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[19:12]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir þessa spurningu og vangaveltur. Það var sérstök umræða um geðheilbrigðismál sem hv. þingmaður stóð fyrir og ef ég man rétt kom hv. þm. Eva Sjöfn Helgadóttir inn á þetta í ræðu. Já, mér finnst þetta bara athyglisverðar vangaveltur. Í þeirri umræðu vorum við að ræða skimanir í samhengi við eftirfylgni og endurhæfingu, bara almennt fyrir aðgerðum, og þá held ég að þetta sé mjög vert. En ég held líka að við þurfum að horfa á hvernig tæknin er að nýtast okkur. Þetta birtist mér svolítið þannig að við erum með ólík kerfi sem halda utan um persónuupplýsingar sem við erum á fullu að reyna að viðhalda í stað þess að vera komin á þann stað að geta treyst á öryggi alla leið og nýtt tæknina miklu betur og þá á fjölbreyttari sviðum vegna þess að forvarnagildi skimana og eftirfylgni er svo óumdeilt. Mér finnst þetta bara mjög góð ábending frá hv. þingmanni.