152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[19:22]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Það er náttúrlega með miklum ólíkindum að heilbrigðiskerfi Íslands hafi breytt grunnþjónustu sem snýr með beinum hætti að u.þ.b. hálfri þjóðinni án þess að það væri einu sinni lagagrundvöllur fyrir skránni sem átti að halda utan um það. Ég hefði ekki haft hugmyndaflug í þetta á sínum tíma. Nóg var nú klúðrið hjá þáverandi ráðherra og ráðuneyti. En núverandi ráðherra er að taka þessi mál, að mér sýnist, föstum tökum og stýra þeim í rétta átt — loksins. Það fólk sem hér um ræðir, sem átti um sárt að binda á tímabili, átti miklu betra skilið og gott að það sé að komast í land.

Mig langaði að spyrja, vegna þess að þetta frumvarp bindur skimunarskrána við krabbameinsskimanir, ég velti fyrir mér hvort það sé kannski fullþröngt vegna þess að fyrirbyggjandi skimanir geta komið að gagni varðandi t.d. hjartasjúkdóma? (Forseti hringir.) Það er gert í sumum löndum. Hefur það verið skoðað í ráðuneytinu?