landlæknir og lýðheilsa.
Hæstv. forseti. Ég hafði með mér frumvarpið sjálft vegna spurningar hv. þingmanns sem ég þakka fyrir. Það eru fjöldamargar skrár sem embætti landlæknis sér um samkvæmt 8. gr. og þetta frumvarp boðar viðbót við þá grein. Í 8. gr. erum við að horfa til fæðingarskrár, skrár um hjarta- og æðasjúkdóma, skrár um taugasjúkdóma, krabbameinsskrár, slysaskrár, vistunarskrár heilbrigðisstofnana og samskiptaskrár heilsugæslustöðva. Síðan eru fleiri skrár; skrá um sykursýki og fleira, heilabilunarsjúkdóma. Ég held að það sé ekki lýðgrunduð skimunarskrá í því samhengi sem við erum að horfa til hér. Það er kannski það sem við þurfum að horfa til. (Forseti hringir.) Þá erum við farin að nýta upplýsingarnar í forvarnatilgangi.