152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[19:24]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Það er kannski einn af mikilvægari hlutum heilbrigðiskerfisins sem þetta mál fjallar að hluta til um, það eru í rauninni forvarnir, að ná fyrr utan um það þegar fólk verður veikt, að grípa vandann áður en hann verður alvarlegur. Það er dálítið merkilegt að hugsa til þess hvernig við hugsum um forvarnir í heilbrigðiskerfinu og í samfélaginu almennt þegar allt kemur til alls, oft er meiri áhersla á löggæslu frekar en forvarnir vegna vímuefnamála eða fátæktar eða ýmislegs svoleiðis sem endar oft síðan sem löggæslumál.

Um það snerist kannski umræðan í Bandaríkjunum þegar talað var um að hætta að fjármagna lögregluna, ekkert endilega til þess að hætta að fjármagna lausn vandans heldur að beina fjármagninu þangað þar sem það hjálpar fólki sem best, svipað eins og í málinu sem við vorum að ræða áðan sem var dregið af dagskrá af því að hugsunin um það að vera ekki í stríði t.d. við þá sem eru háðir vímuefnum, heldur að hugsa um þá sem sjúklinga, breytir allt í einu hugarfarinu um það hvaða lausna við grípum til.

Og þá pælir maður einmitt í því; skimunarskrá, áhugavert. Hvert annað fer ég á skimunarskrá reglulega? Til tannlæknis. Það er kannski ekki beint skimunarskrá sem slíkt en reglulega, á ársfresti, skráir tannlæknir mann og maður mætir í skoðun. Af hverju gildir ekki svipað fyrirkomulag fyrir önnur líffæri líkamans eins og hjartað eða blöðruhálskirtilinn, eða hvað varðar ristilspeglun eins og er verið að tala um og ýmislegt svoleiðis? Við erum mjög vön því að fara með bílinn í smurningu, þetta klassíska, og nýbúin að samþykkja þingsályktun um smurbók heimilanna en hæstv. ráðherra var einu sinni á máli með mér um það sem þingmaður.

Ég held að það væri áhugavert að beina því til ráðherra, ríkisstjórnar og þingsins að hugsa forvarnamál kannski í stærra samhengi en kannski eina skrá sem vantar lagaheimild til að viðhalda út af einhverjum ruglingi fram og til baka, heldur er þetta einmitt einkenni þess hversu tvístrað kerfið er. Ég hef aldrei skilið af hverju tannlæknar eru í einhverju sérkerfi. Þótt þeir séu komnir undir sjúkratryggingar núna þá kostar samt fúlgur fjár að mæta þangað í skoðun á árs fresti. Af hverju er það ekki svipað eins og að mæta á heilsugæslu? Ég skil það ekki, hef aldrei skilið það. Það er orðið gjaldfrjálst fyrir börn, vissulega. Það var heppilegt. Maður var í svoleiðis kerfi þegar maður var ungur sjálfur. Svo fluttist ég á milli bæjarfélaga, af því að ég var alltaf að flytja milli bæjarfélaga úti um allt, og þegar ég flutti í næsta bæjarfélag datt ég ekki inn í það kerfi, bara týndist einhvern veginn inni á milli. Það væri ágætt að vera með einhverja skimunarskrá fyrir slíkt þannig að það væri hægt að láta mann vita hverju maður á rétt á.

Á sama tíma geld ég varhuga við því að hið opinbera sé með skráningu á öllu og öllum. En hver á annars að geyma heilbrigðisupplýsingarnar þínar? Hvar eru þær öruggar? Það er heldur ekki gaman fyrir einstakling að þurfa að sjá um það sjálfur og bera ábyrgð á því að halda utan um þær upplýsingar sjálfur, sérstaklega ekki ef þær glatast síðan í eldsvoða eða hver og einn þarf að sjá um að vista þær í einhverju skýi einhvers staðar o.s.frv. Það er alveg erfitt vandamál að geta náð þessu jafnvægi um að hið opinbera sé ekki einmitt með genaupplýsingar um alla, þær í rauninni verðmætu upplýsingar sem er samt hægt að ná fyrir lýðheilsu allra með einhverjum ámóta upplýsingum. Ég held að við séum að læra betur á þá tæknibyltingu sem gengið hefur yfir á undanförnum árum varðandi rafræna — þetta er ekki allt á pappír lengur, varðandi hvaða möguleikar eru þar til staðar og læra betur á hætturnar og það hvaða afleiðingar upplýsingar geta haft ef þær eru ekki öruggar. Mig minnir einmitt að landlæknir hafi verið í einhverjum vandræðum með hugbúnaðarmál ekki fyrir löngu. Það voru einhverjir samningar og það var eitthvert Microsoft-dót þarna og svoleiðis sem var ekki alveg upp á sitt besta.

Það er gott að nánar er kveðið á um þær persónugreinanlegu upplýsingar sem heimilt er að safna og varðveita og öryggisráðstafanir og réttindi hinna skráðu einstaklinga, tvímælalaust, en varúðin er flókin og við höfum séð það gerast að gagnasöfn hafa losnað út í andrúmsloftið allt of oft á undanförnum árum þannig að það er eitthvert jafnvægi sem við þurfum að læra betur á þarna varðandi þessi forvarnarmál annars vegar, það að ná öllum fyrr, það er einfaldlega hagkvæmara í stærra samhenginu, en líka einmitt að passa upp á að það sé ekki misnotað, á sama tíma og það er líka hægt að hagnýta það í rannsóknartilgangi.

Ég var með fyrirspurn í fjárlaganefnd fyrir stuttu um fjármögnun, um nefnd um ábyrga starfshætti í vísindum. Það kom upp úr dúrnum að sú nefnd er ekki fjármögnuð. Fagráðuneytið vildi greinilega að sú nefnd yrði fjármögnuð. Það fór ekki í gegnum fjármálaráðuneytið, fagráðuneytið leitaði til Alþingis í 2. umr. fjárlaga en hlaut ekki náð um fjármögnun. Hæstv. ráðherra kannast kannski við hvernig þessar tilfæringar á fjármagni geta verið. Kannski er stundum fjármagn fyrir sum verkefni fært eða hliðrað aðeins þannig að það myndast hola sem Alþingi getur þá fyllt og þá er kannski allt í einu komið meira fjármagn í málaflokkinn eða málefnasviðið en nauðsynlega þarf. Þetta er mjög ógagnsætt fyrir okkur hér á þingi og meira að segja í fjárlaganefnd að átta okkur á því hvort það var í rauninni engin fjármögnun fyrir t.d. þessari nefnd. En svarið er að sú fjármögnun er ekki til staðar og ef við viljum hafa svona skráningar sem eiga líka að vera nytsamlegar í vísindastarfi eða heilbrigðisþjónustu þá þurfum við væntanlega líka að passa upp á þá ábyrgu notkun á því sem eitthvað eins og nefnd um ábyrg vísindi ætti að ná að fylgjast með.

Þetta eru svona hvatningarorð til ráðherra að ná kannski að hugsa um þetta í þessari heild, út frá þessu nýja sjónarhorni sem felst í því að bregðast ekki bara við, að einmitt fjármagna ekki bara lögregluna heldur ráðast að rót vandans, að fjármagna ekki bara heilaskurðlækningarnar, þótt þær séu að sjálfsögðu nauðsynlegar ef þannig er, heldur ráðast að rót vandans, að fjármagna ekki bara barna- og unglingageðdeild Landspítalans t.d. heldur líka forvarnaúrræðin á fyrsta og öðru meðferðarstigi, af því að við viljum í rauninni ekki að neinn endi inni á BUGL. Við viljum að allir sleppi við það, það sé búið að taka á móti þeim og faðma þau þannig að þau þurfi ekki að fara alveg í gegnum fyrsta, annað og detta beint inn á þriðja meðferðarstigið og hafa varla komið við á fyrri tveimur eða mætt þangað en það var bara langur biðlisti og vandinn ágerðist það hratt að það var strax komið í neyðarástand.

Ég held að þessi hugsun um að einbeita okkur að fjármögnun til að vinna við rót vandans en ekki afleiðingarnar muni skila okkur mjög miklum árangri á næstunni. En til þess þurfum við hugarfarsbreytingu sem alla vega við Píratar höfum verið að tala um, t.d. í afglæpavæðingarmálinu, og ég vonast til að fleiri séu að kveikja á perunni með það. Fólk skilur almennt séð forvarnir, það hefur séð hversu vel þær virka, t.d. í því hvernig glímt hefur verið við unglingadrykkju og reykingar. Fólk veit að forvarnir virka en samt einhvern veginn virkuðu þær bara í þessum málaflokki, höldum áfram að slá á putta í hinum málaflokkunum, setja fólk á sakaskrá og vera leiðinleg við það og koma fram við það eins og glæpamenn. Ég hvet hæstv. ráðherra til að leggja til jafns þessa málaflokka sem við höfum séð góðan árangur í, eins og t.d. forvarnir í reykingum og drykkju unglinga og reyna að yfirfæra þá hugsun yfir á aðra málaflokka.