landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Mig langaði í samhengi við þetta mál — sem mér líst ágætlega á og held að sé af hinu góða, birtist manni a.m.k. þannig fyrsta kastið og við fyrstu yfirferð — að ræða almennt um krabbameinsskimanir. Hér hefur dálítið verið rætt um að áberandi illa var að því staðið þegar framkvæmd leghálsskimana var flutt frá Krabbameinsfélaginu og til heilsugæslunnar. Það held ég að sé nú kannski klassískt mál og skólabókardæmi um að samráð og samtal þjónar vissulega ákveðnum formlegum tilgangi en skorturinn á því og upplýsingagjöfin framkallaði einfaldlega þá niðurstöðu að konur mæta síður í þessa þjónustu en þær gerðu áður. Það er á ábyrgð stjórnvalda og það er mjög alvarlegt í mínum huga.
Hér er verið að leggja til að skimanaskrá verði ein af þeim heilbrigðisskrám sem embætti landlæknis beri ábyrgð á og reki. Ég verð að viðurkenna, eins og fram kom í máli hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar, að það kemur mér verulega á óvart að lesa í greinargerð að það sé núna sem verið er að skýra lagastoð í þessu sambandi. En fyrst og fremst vildi ég ræða það sem kemur fram í greinargerð á bls. 2, lítil setning sem mér finnst þýðingarmikil í samhengi við skimanir almennt séð, að nú hafi t.d. verið tekin ákvörðun um að ráðast í ristil- og endaþarmsskimanir og það þurfi að aðlaga skrána að þeirri ákvörðun. Ég held að þetta sé mjög mikilvægt skref og hefði viljað fá nánari umfjöllun í greinargerð um tímasetningar, fjármagn og útfærslu í því sambandi og hefði gjarnan viljað heyra hæstv. heilbrigðisráðherra fara yfir það.
Mér er minnisstæð ágæt grein sem ég las fyrir ekki svo löngu eftir Höllu Þorvaldsdóttur, sem starfar hjá Krabbameinsfélaginu — ég held að hún sé framkvæmdastjóri félagsins —þar sem hún var einmitt að fjalla um þessar skimanir og rakti þar að á næstu 15 árum muni krabbameinum á Íslandi fjölga um hátt í 30%. Það gerist auðvitað ekki eftir 15 ár heldur mun þetta gerast jafnt og þétt. Það er auðvitað breyting og fjölgun sem mun hafa mikil áhrif á samfélagið allt en vitaskuld ekki síst á heilbrigðiskerfið. Mér fannst í þessari grein koma fram margar góðar athugasemdir sem mér hefði þótt fara vel á að stjórnvöld hefðu t.d. nýtt sér nýjan stjórnarsáttmála til að fjalla um. Þar kemur m.a. fram að alþjóðastofnanir hafa um áratugaskeið hvatt lönd heims til að koma sér upp virkum krabbameinsáætlunum, áætlunum sem ná yfir alla þætti. Fyrst auðvitað hvernig við komum í veg fyrir krabbamein og síðan yfir í það að tryggja lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein og að lokum yfir í það að draga úr þunganum og byrðinni af krabbameinum í samfélaginu og á heilbrigðiskerfið. Við erum orðin ágætlega flink í því tungutaki eftir heimsfaraldur að ræða um hvernig við léttum þunganum af heilbrigðiskerfinu og hér er komið efni til hins sama.
Ég vonast til þess að heilbrigðisráðherra muni í ræðu á eftir fara betur yfir hverjar ætlanir ríkisstjórnarinnar eru í þeim efnum, þ.e. hvenær verði farið af stað með þessar skimanir. Mér skilst að það eigi að gera það með þeim hætti að taka ákveðna hópa fyrir fyrst, sem sagt byrja hægt og rólega.
Ég hefði líka áhuga á að heyra sjónarmið heilbrigðisráðherra um nýja dagdeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítalanum. Ég held að við öll sem höfum reynslu af því að sækja þessa deild, vera þar með aðstandendum sem hafa verið að glíma við krabbamein, getum tekið undir það að aðstaða deildarinnar er því miður óboðleg og óviðunandi. Ég myndi vilja sjá ríkisstjórnina leggja á borð einhverjar aðgerðir um að þessi aðstaða verði stórbætt í þágu sjúklinga og starfsfólks en líka aðstandenda. Það hefur komið fram í fjölmiðlum að Krabbameinsfélagið hafi samþykkt á aðalfundi að leggja á borðið 450 millj. kr. framlag til þessa verkefnis með það að leiðarljósi og markmiði að stjórnvöld setji þetta verkefni í forgang. Hver eru sjónarmið hæstv. heilbrigðisráðherra þar um?
Ég held að öll umræða um krabbamein sé erfið og hitti víða á sára taug. Við erum svo mörg sem höfum reynslu af þessum sjúkdómi, ýmist sem aðstandendur eða sjúklingar. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna og vegna þess hve algengur þessi sjúkdómur er í samfélaginu öllu, og vegna þess að hann getur oft á tíðum orðið alvarlegur, þá hefur það víðtæk áhrif í samfélaginu öllu að þessi deild sé ekki sterkari en raun ber vitni hvað aðstöðu varðar. Ég er ekki að tala um þá þjónustu sem fólk þiggur, þá þjónustu sem veitt er af hálfu þess frábæra fagfólks sem þarna starfar heldur um aðstöðuna.
En ég kom hérna upp til að lýsa yfir ánægju minni með þetta mál og ákveðinni furðu á lagastoðinni, eins og ég segi, en það er gleðilegt að verið sé að ráða bót á því núna. Ég hefði mikinn áhuga á að heyra frekari umfjöllun hæstv. heilbrigðisráðherra um þessar skimanir, en ekki síður um afstöðu hans og hvort þess sé að vænta að aðstaða krabbameinslækninga á Landspítalanum verði bætt á næstunni. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það er sannarlega mikil þörf á því.