152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[19:58]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að rifja upp hér skýrslubeiðni sem hv. þingmaður var fyrsti flutningsmaður að varðandi breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi sem við fengum í hendurnar fyrir tæpu ári eftir fjögurra mánaða vinnu í ráðuneytinu við að taka saman það sem við héldum að væri bara að prenta út úr málaskrá eitthvað sem lægi fyrir. Það tók fjóra mánuði en voru kannski ekki myljandi afköst, þetta eru átta síður, tvær síður á mánuði sem við fengum út úr ráðuneytinu þar. En í þessari skýrslu er vitnað til þeirra skjala sem byggt var á. Ég kíkti á eitt þeirra sem er frá 22. febrúar 2019. Það eru þrjú ár síðan það var. Það er minnisblað landlæknis um staðsetningu, stjórn og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Þar er farið yfir afstöðu embættisins til þeirrar tillögu skimunarráðs að færa skimanir frá Krabbameinsfélaginu til opinberra aðila. Hérna stendur, þetta er pínu fyndið svona eftir á að hyggja, með leyfi:

„Telja verður líklegra að verkefni sem snúa að skipulagi, utanumhaldi, lagaumgjörð og eftirliti verði auðveldara ef skimanir eru hluti hinnar almennu og opinberu heilbrigðisþjónustu.“

Brandari eða tragískt forspil að því sem síðan fylgdi.

En hér stendur á fyrstu síðunni: „Einnig skal halda skrá um eðlilegar rannsóknir (skimunarskrá). Kanna þarf lagastoð fyrir þessu fyrirkomulagi.“ Svo líða þrjú ár og það er búið að framkvæma þetta fyrirkomulag í heilt ár án lagastoðar. (Forseti hringir.) Datt þingmanninum í hug (Forseti hringir.) að þetta gæti í alvöru hafa verið svona vanreifað þegar skimanirnar voru færðar á sínum tíma?