landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvörin og ætla að byrja á lokaorðum hans, spurningin var: Datt hv. þingmanni í hug að svona gæti verið? Hreinskiptið svar við því er að mér datt það ekki í hug þegar við vorum fyrst að ræða þetta mál að svo gæti verið. En eftir því sem á leið varð mér ljóst að allt skipulag, allt utanumhald, svo notuð séu sömu orð af hálfu ráðuneytisins, eða þáverandi ráðherra öllu heldur, í þessu máli var með miklum ólíkindum. Mér fannst það sjálfstætt merkileg upplifun að t.d. átta mig á því að rödd kvenna fékk hvergi að heyrast í þessu ferli öllu. Svo ég leyfi mér að tala sem kona er reynsla kvenna alla vegana og skoðun af þessu tagi fyrir konu sem hefur erfiða reynslu t.d. af meðgöngu og fæðingu, konur sem hafa erfiða reynslu í samhengi við að hafa orðið fyrir ofbeldi, þarna myndast náið samband við lækni sem framkvæmir skoðun og að taka allt þetta kerfi upp með þeim hætti sem þarna var gert var með algerum ólíkindum enda töluðu læknar um að hér væri aðför að heilsu kvenna. Þetta fannst mér ríma reyndar við áherslur ríkisstjórnarinnar allrar á öllu síðasta kjörtímabili, að það væri sjálfstætt markmið að helst engir sjálfstætt starfandi sérfræðingar fengju að koma að heilbrigðisþjónustunni. Ég er ánægð að sjá að mér virðist sem nýr heilbrigðisráðherra sé að slá aðeins annan tón. En þetta er auðvitað merkilegt mjög með þessa lagastoð, svo ekki sé fastar að orði kveðið.