landlæknir og lýðheilsa.
Herra forseti. Svo ég taki upp einn af þráðum í svari hv. þingmanns þá held ég að sú ákvörðun að framkvæma skimanir fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstum og gera það vel sé einhver svona femínískasta heilsufarspólitíska ákvörðun sem hægt er að taka. Það að klúðra því jafn stjarnfræðilega og gerðist á síðasta kjörtímabili er ótrúlegt. Ég næ ekki enn þá utan það. Við vorum nú samferða í gegnum það að fylgjast með skýrslunni, fylgjast með þessum breytingum, ræða þetta og rýna á sínum tíma. En það er í alvöru þannig að í skjali frá landlækni sem er í skýrslunni sem skilað var til þingsins er sagt að eitt af því sem hafi legið til grundvallar þessum breytingum, stendur þar svart á hvítu, sé að það þurfi að stofna stjórnstöð skimunar sem taki yfir verkefni leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins og það þurfi að kanna lagastoð fyrir því að sú stjórnstöð haldi utan um skimunarskrá.
Hefði kannski mátt nefna þetta í skýrslunni sem við fengum þar sem við vorum að spyrja um ferlið og ákvarðanir og alla vankanta á framkvæmdinni sem hugsast gætu? Hefði ráðuneytinu kannski mátt detta í hug að við hefðum áhuga á því að vita að það ætti að skítamixa grunnskrána utan um þetta (Forseti hringir.) út frá einhverri almennri heimild um utanumhald sjúkraskráa hjá landlækni?