landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaðurinn nefnir þá skýrslubeiðni sem ég lagði fram á sínum tíma vegna þessa flutnings, þ.e. þegar leghálsskimanirnar áttu að færast frá Krabbameinsfélaginu sem síðar kom í ljós að var gert án þess að fyrir lægi hver gæti tekið við verkefninu, án þess að fyrir lægi hvar ætti að greina sýnin, án þess að kannað hefði verið hvort Landspítalinn gæti séð um sýnin og greint þau sem kom síðan í ljós að Landspítalinn gat, hann var bara ekki spurður. Allt með ævintýralegum töfum og óþægindum fyrir konur sem þessa heilbrigðisþjónustu sóttu. Ætlunin á sínum tíma með því að óska eftir skýrslu var kannski sú barnalega trú að með því að kalla fram gögn og fá röksemdir þáverandi heilbrigðisráðherra þá yrði myndin skýrari og það myndi framkalla einhverja ró. En niðurstaðan varð því miður ekki sú. Bæði þurfti mikið að kalla eftir þessari skýrslu, bara að hún yrði unnin og hún kæmi hingað inn í þingið og hún var reyndar lögð fram á síðasta degi þings sem varð þess valdandi að samtalið gat ekki átt sér stað í þingsal. Þessi átta blaðsíðna skýrsla tók svo langan tíma í vinnslu að þingheimur var sviptur tækifæri á að eiga þetta samtal við þáverandi ráðherra. En ég ætla að enda á jákvæðum nótum: Ég er ánægð að sjá að það stendur til að gera betur hér og ég styð þau markmið öll heils hugar.