152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[20:07]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að hlusta á okkur hér og heyra hvað við erum að leggja fram. Þó svo að frumvarpið sem verið er að ræða sé ekki stórt um sig og tengist einna helst því að geta haldið skimunarskrá þá er margt í þessu sambandi sem hefur ekki verið haldið eins vel utan um og hefði átt að vera á undanförnum árum. Þar sem hæstv. ráðherra var kannski ekki alveg að hugsa bara um heilbrigðismál fyrr en fyrir tæpum sex mánuðum þegar hann fékk símtal frá formanni síns flokks um að verða heilbrigðisráðherra langar okkur að fá að koma ákveðnum punktum til skila, sér í lagi þar sem við vitum að hæstv. heilbrigðisráðherra er að hlusta á það sem hér er sagt.

Mig langaði að byrja á því að tala aðeins um forvarnir. Það hafa verið gerðar alls konar úttektir á því hvað forvarnir eru mikilvægar. Oft er talað um að fyrir hverja 1 kr. sem er eytt í forvarnir sparist um 5–6 kr. í viðbragði við þeim hlut sem annars hefði verið hægt að stoppa mun fyrr. Þegar við erum með heilbrigðiskerfi sem er sprungið peningalega séð og þurfum að finna leiðir til að geta veitt gæðaþjónustu fyrir minni pening er það nákvæmlega með því að fjárfesta í forvörnunum sem við getum náð að bæta í. Þar eru skimanir eitt af mörgum þeim tækjum sem við höfum.

Mig langar líka að nefna það, hafandi búið erlendis, að eins og maður fær símtal frá tannlækninum sínum, rétt eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson benti á, um að koma í tékk þá fær maður nákvæmlega það sama einu sinni á ári frá sínum heimilislækni þar sem maður fer í blóðprufu. Það er jafnvel tekið hjartalínurit eða einhverjir einfaldir hlutir til að tékka á því hvað er að. Vitandi hver kostnaðurinn er við hjartasjúkdóma og annað sem hægt er að finna snemma með því að mæla t.d. kólesteról í blóði og annað þá skiptir þetta miklu máli. Ef þú færð ekki þetta símtal og ert ekki hvött eða hvattur til að mæta einu sinni á ári í almennilegt tékk þá ferðu ekki, rétt eins og þú ferð ekki til tannlæknis fyrr en tannpínan er komin.

Ég þekki sögu um eina konu sem var nýflutt erlendis frá og mætti til síns heimilislæknis. Heimilislæknirinn spurði: Hvað er að þér? Ekkert, það er ekkert að mér. Nú, af hverju ertu þá hér? Ég vildi bara fara í tékk. Hvernig tékk? Bara þetta árlega. Hún þurfti í rauninni að knýja heimilislækninn sinn til að sinna þessum forvörnum, gera þessar skimanir, þessarar einföldu skimanir á blóðsykri, á kólesteróli og öðrum hlutum. Við þekkjum örugglega öll sögur af fólki sem hefur farið í einhvers konar tékk og hefur fundið eitthvað sem seinna hefði verið mun dýrara að vinna úr. Mig langar því að hvetja hæstv. ráðherra að finna forvarnaleiðir sem þurfa ekki að kosta mikið, eru einfaldar en geta sparað milljónir ef ekki milljarða. Fyrst við erum að ræða um þetta er rosalega mikilvægt, eins og einn hv. þingmaður kom inn á áðan, að þegar fólk fer í skimanir, þegar fólk fer í próf, að niðurstöðurnar komi sem fyrst. Sumt fólk sefur ekki frá því að það fer í skimanir og þangað til niðurstaðan er komin, t.d. af ótta við að krabbamein sé að taka sig upp aftur.

Talandi um að taka sig upp aftur. Ég spurði hæstv. ráðherra áðan um aldurinn. Sem aðstandandi konu sem fékk leghálskrabbamein 25 ára gömul og þurfti síðan að berjast við það á hverju ári að fá að fara í skimun, þó að hún væri ekki orðin 40 eða 50 ára, til þess að vera bara í eftirliti með því hvort meinið væri að koma upp aftur, þá þurfum við að passa að við opnum á slíkt, að það sé ekki 40 eða 50 ára aldurstakmark, að þú megir ekki fara í skimanir. Ef viðkomandi er hrædd um að fá þetta, t.d. vegna sögu en við vitum að mikið af krabbameini er talið vera genetískt, erfðafræðilegt, þá er mjög mikilvægt að opna á að það sé ekki einhver dagsetning: Þú mátt mæta á afmælisdaginn þegar þú ert fimmtug. Við þurfum líka að hafa í huga að hér á landi er t.d. mun algengara hið svokallaða BRCA-gen en í öðrum löndum. Það er ekki vitað af hverju. Það er þó nokkuð stór hópur kvenna og karla hér á landi með þetta BRCA-gen og það er mjög mikilvægt að þar sé farið í gott eftirlit og fólkið sé stutt í þeirri fyrirbyggjandi meðferð sem oft er farið í.

Forvarnirnar eru mikilvægar en þegar við erum með svona stórt kerfi eins og heilbrigðiskerfið og við vitum að við þurfum að laga það þá er líka voða erfitt að byrja að laga eitthvað sem við erum ekki að mæla. Þess vegna er rosalega mikilvægt að hafa skrár eins og þær sem hæstv. ráðherra er að fjalla um og að þau gögn séu að sjálfsögðu ekki persónugreinanleg en að þau séu í tölfræðilegum skilningi aðgengileg þannig að hægt sé að átta sig á því hvort við séum að bæta hlutinn eða ekki. Ég held að það sé hægt að vinna miklu fleiri tölulegar upplýsingar upp úr sjúkraskrám og annað til að hafa skilning á því hvernig við erum að standa okkur.

Ég trúi því að hæstv. ráðherra vilji byggja upp enn betra heilbrigðiskerfi. Þá er bara grunnurinn að því að nýta sér gögnin til að vita hvar pottur er brotinn, hvar við erum að gera góða hluti, hvað við getum lært af öðrum löndum, hvernig við getum gert það á öruggan hátt, hvernig við gerum það á þann hátt að við séum ekki að hafa áhrif á persónuverndargögn og allar þessar gryfjur sem er auðvelt að falla í. Það hefur oft verið talað illa um ameríska heilbrigðiskerfið en eitt af því sem þau hafa lært, af því að þau eru keyrð áfram af mjög kapítalísku sjónarmiði, er nákvæmlega að skoða gögnin til þess að vita: Hvað eigum við að bæta? Hvar eigum við að auka forvarnirnar? Hvar eigum við að spara peninginn? Oft er talað um að við viljum skilvirkara heilbrigðiskerfi. Eina leiðin til að fá skilvirkt heilbrigðiskerfið er ef við mælum það. Einhvers staðar var sagt: Þú getur ekki bætt hluti sem þú mælir ekki. Þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til að finna endilega leiðir til þess að finna meiri gögn og hafa þau opin þannig að við sjáum þau góðu verk sem verið er að vinna.

Svo að lokum: Á meðan við gerum þetta höldum þá endilega áfram með skrefin sem hafa t.d. verið tekin síðastliðin tvö ár varðandi Covid. Þar er skimunarskrá sem var sett inn á netið tiltölulega fljótt. Það sem er kannski mikilvægast er að skimunarskráin, upplýsingarnar um hvenær þú fórst og hverjar voru niðurstöðurnar og allir þessir hlutir, var aðgengileg sjúklingunum. Það er frábært að vera komin með kerfi eins og Heilsuveru til að geta pantað lyfin og séð hvaða lyfjum maður hefur verið á og allar bólusetningarnar. Einhver hv. þingmaður talaði áðan um að þurfa að finna bólusetningarvottorðið. Nei, nú er það allt bara á Heilsuveru. Fleiri af þessum gögnum, niðurstöður úr blóðprufum og annað — vegna þess að við erum komin með fullt af öðrum hlutum, t.d. úrin okkar og annað og hugbúnað sem getur hjálpað okkur við að bæta okkar hegðun varðandi mat og hreyfingu og annað. Mörg af þeim óska eftir aðgangi að gögnum vegna þess að þá er hægt að veita þér betri leiðbeiningar. Það þarf að hugsa víðara um hvernig hægt er að nýta gögnin. Það að nýta gögnin er hluti af fjórðu iðnbyltingunni og við þurfum svo sannarlega að nýta þau vel í heilbrigðiskerfinu.

Mig langar að þakka aftur hæstv. ráðherra fyrir að vera hér og hlusta og ég sé að hæstv. ráðherra kinkar kolli og skrifa niður og það veit á gott. Við munum styðja hann í þessu máli og öðrum sem koma sem hjálpa til við að bæta heilbrigðiskerfið okkar.