152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[20:20]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér er að eiga sér stað, og ekki vanþörf á. Þetta er auðvitað bara hluti af því stóra máli að ganga í gegnum þetta líf sem manneskja og vera í sæmilegu lagi þann tíma.

Hv. þingmanni varð tíðrætt um forvarnir og forvirkar aðgerðir sem þyrftu að vera til staðar og ég er svo sannarlega sammála því að við getum gert miklu betur þar. Auðvitað er gulls ígildi ef hægt er að grípa inn í sjúkdóma sem eru mjög alvarlegir á forstigi eða áður en þeir þróast í að verða illvígir og illviðráðanlegir. En við getum líka með alls konar aðgerðum hugsanlega komið í veg fyrir þessa sjúkdóma með breyttu neyslumynstri, hreyfingu og öðru slíku sem getur hjálpað okkur að halda svona sjúkdómum niðri. Það er bara stundum of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í, það segir máltækið okkur.

Hv. þingmaður nefnir líka heilsugæsluna og grunnþjónustuna sem þar þarf að vera til staðar. Mig langar að beina því til hv. þingmanns, af því að hér var nefnt að heilsugæslan ætti kannski að sjá um þessar skoðanir: Hvað þá þar sem heilsugæslan er ekki til staðar?