landlæknir og lýðheilsa.
Forseti. Hv. þingmaður spyr: Hvað ef heilsugæslan er ekki til staðar? Ég segi líka: Hvað ef heilsugæslan á næst tíma fyrir mig eftir þrjá mánuði? Það er að sjálfsögðu hluti af því sem við þurfum að leysa. Ef eitthvað er að í dag er fólk endalaust að fara á læknavaktina eða bráðamóttökuna vegna þess að það er þriggja mánaða bið að komast á heilsugæsluna á mörgum stöðum. Það gengur náttúrlega ekki að það sé endalaus bið eftir því að geta pantað sér tíma til að panta sér tíma síðan tíma í skimun. Við þurfum svo sannarlega að tækla það strax hvernig við getum gert þetta þannig að heilsugæslan anni því sem við erum að ætlast til af henni og við þurfum að finna út úr því hvað orsakar það að við erum ekki með tíma.
En hv. þingmaður talaði líka um forvarnir og það hvernig við breytum lífsstíl okkar. Það er einmitt íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem hefur búið til tækni til að hjálpa fólki við að breyta lífsstíl sínum, breyta hegðuninni, og notar til þess mjög góða tækni sem byggist á hegðunarhagfræði, svo ég noti nú íslenska orðið yfir það. Og eitt af því sem það nýsköpunarfyrirtæki var t.d. að gera var að hjálpa fólki sem er alveg á mörkunum að verða sykursjúkt að breyta hegðuninni þannig að það hætti að vera í áhættuhópi. Vitandi það hvað það kostar þegar fólk fær sykursýki er mikill sparnaður að geta einmitt hjálpað fólki við að breyta hegðun sinni.