152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[20:25]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við búum við það að í mörgum sveitarfélögum er ekki heilsugæsla. Ég vil bara nefna Suðurnesjabæ sem dæmi, sem er nýja sveitarfélagið sem áður var Garður og Sandgerði. Það er heldur ekki heilsugæsla í Vogunum.

Hv. þingmaður nefndi að það væri ákjósanlegt að einhver reglubundin skoðun gæti farið fram. Við erum skyldug til að fara með bílinn okkar í skoðun reglulega. Við komumst ekki hjá því, númerin eru klippt af ef við sinnum því verkefni ekki. Þá eru þar einhverjir sérfræðingar sem taka bílinn okkar, skríða undir hann og lýsa í gegnum hann og skoða alla hluti, hvort bremsurnar eru bilaðar eða stýrisendarnir farnir eða bremsuljósið. Þessi skoðun þyrfti að eiga sér stað á heilsugæslunni, að maður væri bara skyldaður í skoðun með reglulegu millibili. Þá værum ekki í þeirri stöðu á þessum stöðum, þar sem ekki er hægt að veita þessa þjónustu, að vera farin að glíma við banvæna sjúkdóma þegar fólk áttar sig loks á því að það er orðið veikt af illvígum sjúkdómi eins og krabbameini. Er þetta ekki það sem við þurfum að einhenda okkur í sem samfélag, að styrkja þessar grunnstoðir hvers samfélags til að við getum forðast það að missa fólkið okkar úr þessum vondu sjúkdómum sem enginn vill fá?