landlæknir og lýðheilsa.
Forseti. Jú, við þurfum svo sannarlega að vera með miklu skilgreindari leiðir til að fara í svona ástandsskoðun; spurning hvort maður fær árin tattúveruð niður handlegginn, svona eins og bíllinn fær límmiðana. Að öllu gamni slepptu er mjög mikilvægt að gera skoðanir af þessu tagi og þá uppgötvast hlutirnir mun fyrr en ella. Við erum mörg þannig að við förum ekkert fyrr en við erum virkilega komin með verki einhvers staðar. Þá fyrst förum við á staðinn, að leita læknis. Þegar fólk finnur fyrstu einkenni er það kannski eitthvað sem mjög auðveldlega er hægt að laga. Ég tek algjörlega undir þau orð hv. þingmanns að þetta er eitthvað sem við þurfum að gera.
Varðandi fyrra atriðið, það að ekki eru heilsugæslustöðvar alls staðar, þá hef ég reynslu af því að nýta mér fjarheilbrigðisþjónustu á þann máta að geta talað við lækni í gegnum vídeó eða bara spjall eða tölvupóst. Oft er það þannig að þú þarft að spyrja um eitthvað, þú ert að segja eitthvað og það er hægt að sinna fullt af hlutum án þess endilega að það þurfi að skoða þig, eða þá að maður er skoðaður í gegnum vídeó og læknirinn segir: Ja, heyrðu, já, þú ert kominn með ristil á augað, dæmi sem ég þekki. Síðan er hægt að segja: Já, farðu í blóðprufu á þennan stað og svo hef ég samband um leið og þú ert búinn í henni. Það er hægt að hugsa fjarheilbrigðisþjónustuna mun betur og þar með sinna þeim sveitarfélögum þar sem ekki er heilsugæsla.