152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[20:29]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Herra forseti. Þetta frumvarp til laga er bara gott og ég hef dálitlar vangaveltur um þetta í aðeins stærra samhengi. Eins og aðrir hv. þingmenn hafa talað um hér í dag eru ekki margir, kannski miðað við það sem var áður og það sem við viljum, sem mæta í þessar skimanir. Mér finnst bara mikilvægt að spá í að fara í einhvers konar stórátak í þeim málum. Mér finnst ekki að þetta ætti að vera eitthvað sem fólk er skyldað til að gera heldur að við fræðum fólk, ungt fólk í menntaskólum og á vinnustöðum, um hvers vegna þetta er mikilvægt.

Í því samhengi þarf líka að taka betur á móti fólki, t.d. þegar konur mæta og upplifa að það gæti verið einhvers konar hnúður í brjóstinu eða eitthvað annað, og að fólki sé mætt með skilningi og fái þá þjónustu, þessa brjóstaskimun eða hvað það er sem veldur því sem þessi einstaklingur kvartar yfir og finnur ástæðu til að fara til læknis, flestir fara ekki til læknis að gamni sínu. Við þurfum, held ég, oft að hlusta frekar og fá frekar fleiri, hvað segir maður, fals-neikvæða, sem sagt að taka frekar fleiri en færri og athuga hvort málið sé eitthvað sem þarf að skoða til hlítar eða ekki, vegna þess að fórnarkostnaðurinn er það mikill ef við erum að neita fólki um að koma í skoðun vegna aldurs eða einhvers annars, þá eru bara svo ótrúlega margir þættir sem geta spilað inn í það að fá krabbamein. Og það er ekki hægt að segja: Nei, bíddu, þú ert ekki fertug, það getur ekki verið að þú sért komin með brjóstakrabbamein, komdu eftir fimm ár.

Við þurfum að treysta því að fólk sé sérfræðingar í sínu eigin lífi og sínum eigin líkama og við þurfum að leiðbeina því og sýna því auðmýkt vegna þess að þetta er með því viðkvæmasta sem fólk gerir, að fara til læknis og láta skoða sig frá hvirfli til ilja. Það er bara eitthvað sem fólk er ekki að gera bara af því bara og þeir sem gera það bara af því bara, sem eru örugglega ekki margir — þá er það bara allt í lagi vegna þess að við viljum frekar fá fólkið og grípa það fólk sem er veikt og er í raun og veru með einhvers konar krabbamein eða eitthvað sem það finnur ummerki um frekar en að sleppa þessu fólki vegna einhvers konar reglna um að það geti ekki verið að það sé komið með brjóstakrabbamein þar sem það sé ekki búið að ná einhverjum ákveðnum aldri. Það er eiginlega ótrúlega sorglegt að heyra hversu oft, og þá sérstaklega í tengslum við brjóstakrabbamein, en líka annars konar krabbamein, þetta hefur gerst.

Svona reglur setja væntanlega starfsfólk líka í bobba. Það er að reyna að framfylgja reglum á sínum vinnustað og reglum sem settar eru fyrir það til að framfylgja þeim. Ég öfunda ekki það fólk sem vinnur á þessum stofnunum og þarf að neita einstaklingum um að koma í skimun vegna aldurs t.d. Þess vegna finnst mér að það þurfi að endurskoða hvernig þetta er gert og að við treystum meira á að fólk ætli sér ekki að fara til læknis eða ætli sér ekki að fara í skimanir nema ástæða sé fyrir því. Ekki langar mig að fara til læknis að ástæðulausu. Það að ég sé komin og ég sé búin að gera mér ferð til læknis og að læknirinn eða skimunarmiðstöðin eða hvert sem ég fer taki ekki á móti mér er bæði niðurlægjandi og rýrir líka trú mína á eigin getu til að meta hvenær ég tel við hæfi fyrir mig að fara til læknis og hvenær ekki.

Það er mjög mikilvægt að við séum í góðum tengslum við líkamann okkar og að við getum treyst á það að þegar líkaminn okkar eða innsæið segir okkur að eitthvað sé ekki í lagi. Ég þekki minn líkama best eins og aðrir þekkja sína líkama best, og læknar og aðrir sérfræðingar eru sérfræðingar í fræðunum en þú ert sérfræðingur í þínum eigin líkama. Ég held að þetta sé eitthvað sem þurfi að endurskoða, að ekki sé hægt að neita fólki um skimanir, vegna þess að fórnarkostnaðurinn er svo svakalegur ef það er gert á röngum forsendum og með of litlar upplýsingar. Aldur er ekki nægar upplýsingar og það eru náttúrlega bara ýmis dæmi um það. Ég er ekki með neina tölfræði um það en bara í fjölmiðlum og annars staðar hefur maður heyrt miklar harmsögur af fólki sem hefur greinst allt of seint með krabbamein þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að leita til lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks. Auðvitað er fólk sem starfar í heilbrigðiskerfinu mannlegt eins og allir aðrir en ef svona óraunhæfar reglur eru settar utan um hluti eins og heilsu, líkamlega heilsu eða geðheilsu eða hvers konar heilsu, þá er fórnarkostnaðurinn miklu meiri en ef við bara treystum fólki aðeins betur og tökum frekar 20, 30 eða 40 fleiri í skimun en ella. Mér finnst þetta vera eitthvað sem þyrfti að endurskoða. Þar sem við erum ekki einu sinni að fá fólkið sem við viljum í skimanirnar er rosalega mikilvægt að við tökum á móti fólkinu sem vill þó koma. Mér finnst heldur ekki sanngjarnt að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að vera undir einhvers konar regluverki sem virkar ekki og er væntanlega að gera sitt besta, auðvitað, en það að fólk sé 40 ára eða 30 ára segir ekki mikið.

Svo finnst mér líka merkilegt að skoða þetta út frá persónuupplýsingum og hér ætla ég aðeins að vitna í frumvarpið sjálft. Þar stendur:

„Tilgangur skrárinnar er að stuðla að samræmdri og markvissri framkvæmd og eftirfylgni krabbameinsskimana og auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Ráðherra er heimilt, í reglugerð, að kveða nánar á um þær persónugreinanlegu upplýsingar sem heimilt er að safna og varðveita, öryggisráðstafanir og réttindi hinna skráðu einstaklinga.“

Ég vil aðeins í tengslum við þetta taka upp þráðinn frá því sem hv. þm. Helga Vala Helgadóttir talaði um áðan. Þetta er rosalega fallegt og flott og þarna erum við að hugsa um hag fólks. En af hverju er ekki löngu búið að gera þetta í geðheilbrigðismálum, hjá þeim sem hjálpa fólki sem mætir á geðdeildir Landspítalans og er í sjálfsvígshættu? Það væri hægt að skipta út krabbameinsskimunum og tala um Geðhjálp eða geðheilbrigðismeðferð, geðmeðferð, og væntanlega myndu allir sem sækja sér þessa þjónustu samþykkja það. Auðvitað myndi ég vilja að það væri gert í samtali við notendur fyrst og fremst. Ég stóð svolítið í þeirri trú að ekki væri búið að gera það vegna persónuverndarsjónarmiða. En ég held að það sé í raun og veru bara svolítið áhugaleysi og vanfjármögnun og bara hálfgert vonleysi innan geðheilbrigðiskerfisins. En ég held að það þurfi að valdefla og gera flott frumvörp til laga um eftirfylgni og markvissa framkvæmd á meðferð fyrir fólk sem er í sjálfsvígshættu eða leitar á bráðaþjónustu geðdeilda landsins.

Þetta er það sem ég vildi fara yfir. Annars finnst mér þetta bara vera mjög gott og ég vil taka undir með þeim sem hafa talað um forvarnir, að þær séu mjög mikilvægar. En það sem mér finnst mikilvægast er að við leyfum öllum sem vilja koma í skimun að koma í skimun og hvetjum aðra sem vilja ekki koma til þess að koma án þess að einhverjar reglur séu um það. Það á bara að hlusta á fólk og treysta því að það sé sérfræðingar í sínum eigin líkama og sínu eigin lífi en ekki horfa bara á það hve fólk er gamalt í einhvers konar lífárum, sem segir frekar lítið.