152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[20:57]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs í lok þessarar umræðu til að þakka fyrir góða og uppbyggilega umræðu um mikilvægt mál sem við erum öll sammála um. Ég vísa til orða síðasta ræðumanns, hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar, um að það sem við erum að gera hér er að treysta grundvöllinn fyrir framkvæmd skimana í tíma. Ég ætla jafnframt að bregðast við vangaveltum hv. þingmanns um frekari skimanir af því að það hefur komið fram í umræðunni. Hv. þingmaður dró fram hjartasjúkdóma og ég þarf að spyrja mér fróðari menn um það, hvort það sé ekki hluti af þessu. Ég held, miðað við umræðuna og áherslu á forvarnir og mikilvægi skimana og þess að geta metið árangur, að þannig þurfum við að hugsa þetta til framtíðar.

Fjölmargir hv. þingmenn, virðulegur forseti, komu inn á forvarnagildi og aðgengi. Hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir kom inn á aðgengi og mikilvægi þess að ná til þess hóps kvenna sem er af erlendu bergi brotinn. Þar er ekki síst menningarmunur sem við þurfum að huga að og ég tek sannarlega undir það. Ég var hér í andsvari við hv. þm. Gísla Rafn Ólafsson og var ekki með tölurnar í kollinum sem hv. þingmaður spurði út í en þær er að finna á ágætisvef samhæfingarmiðstöðvar heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Þá langar mig að koma í því samhengi að ristil- og endaþarmsskimunum sem er verið að hefja undirbúning á. Búið er að ráða verkefnisstjóra til verkefnisins. Hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir kom inn á það. Þar verður vonandi byrjað að skima í lok þessa árs og verið er að setja vinnuhóp saman. Þar er mjög mikilvægt að koma á sameiginlegum miðlægum speglunargrunni, sem ég kann ekki að útskýra. Þannig að það er ýmislegt í undirbúningi til að þetta geti hafist og vonandi verður boðað í skimanir þegar líður á árið, í lok þessa árs verður það bara komið í gang. Þegar komin er reynsla á það er gert ráð fyrir að skima aldurinn 50–74 ára. Þetta er því miður það eina sem ég veit um stöðu verkefnisins akkúrat núna. Ég held að það hafi verið mjög mikilvægt að fá verkefnisstjórann og það er búið að ráða hann og setja saman vinnuhópinn.

Hér var rifjað upp að við hv. þingmenn áttum þess kost í kosningabaráttunni að heimsækja Krabbameinsfélagið sem fór yfir söguna og stöðuna og ég spurði í lok fundar hvort það væri hægt að draga fram tvennt mjög mikilvægt, mikilvægustu verkefnin. Þá voru það einmitt skimanir í ristli og endaþarmi og að koma því af stað sem fyrst, og hitt var að byggja upp krabbameinsdeildina á Landspítalanum. Eins og við þekkjum og hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fór yfir hefur Krabbameinsfélagið boðið einn þriðja af fjármögnun þess til að endurbyggja deildina á Landspítalanum. Ég var í andsvari eða samtali í þinginu um daginn um að það þurfi að koma þessu beina samtali að Krabbameinsfélaginu og Landspítalanum. Ég hef átt þetta samtal við Landspítalann og Krabbameinsfélagið og það eru bara mjög jákvæðar undirtektir við þetta verkefni. Vonandi tekst okkur bæði að nýta þetta mynduglega framlag og ekki síst að endurbyggja deildir með þjónustu við sjúklinga í huga.

Hv. þm. Guðbrandur Einarsson kom að því að við erum með þá stefnu að styrkja og efla heilsugæsluna og það er rétt að staðan er ólík eftir landshlutum. Við þekkjum stöðuna á Suðurnesjum. Það eru tæplega 4.000 íbúar í Suðurnesjabæ og þar væri ráð að vera með heilsugæslusel. Það þarf að efla heilsugæsluna. Heilbrigðisstofnunin ræður bara ekki við þetta, bæði er það vegna mönnunarvanda og aðbúnaðar. Hún getur kannski, ef maður leggur vel í, þjónustað helminginn af svæðinu. 20% af íbúum svæðisins eru skráð í heilsugæslu annars staðar, eru ekki skráð á svæðið. Það er ýmislegt sem þarf að huga að og ef við eigum að fylgja eftir þeirri stefnu að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað þá þurfum við sannarlega að grípa inn í þarna. Það hefur sigið á ógæfuhliðina síðasta áratuginn og síðustu sjö árin með þessari gríðarlegu fjölgun á svæðinu.

Að lokum langar mig að koma inn á það sem hv. þingmenn Helga Vala Helgadóttir og Eva Sjöfn Helgadóttir komu inn á varðandi skimanir og geðheilbrigðismál. Mér finnst það mjög athyglisvert og eins það sem snýr að aðbúnaði heilbrigðisstarfsfólks. Ég vil tengja við öryggismenningu. Ég vil líka segja því tengt að ég hef sett af stað og skipað starfshóp til þess að fara yfir réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks þegar upp koma alvarleg tilvik, skráð alvarleg tilvik. Ef við eigum að treysta öryggismenninguna fyrir heilbrigðisstarfsfólkið okkar þá þurfum við að taka þessi mál til skoðunar og tengjast því regluverki sem á í raun og veru að auðvelda okkar frábæra starfsfólki að sinna störfum sínum.

En ég ætla bara að árétta þakkir fyrir mjög lærdómsríka og uppbyggilega umræðu, hæstv. forseti.