landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hans orð varðandi stöðuna á Suðurnesjum og ég finn að ráðherra hefur skilning á því sem þar á sér stað. Þegar minnst er á þetta mál þá kveikir það í mér sem sveitarstjórnarmanni til áratuga á svæðinu. Við erum búnir að búa lengi við þessa stöðu, ekki bara í einhver ár heldur í áratugi, og skemmst er að minnast þeirrar stöðu sem upp kom þegar allir læknarnir sögðu upp og fóru. Síðan hefur ástandið ekki lagast og hefur bara verið þannig, eins og hæstv. ráðherra nefndi, að þúsundir Suðurnesjamanna hafa valið að skrá sig á aðra heilsugæslu en í heimabyggð. Ég hef ekki gert það og mun ekki gera það og ætla að reyna að berjast fyrir því að þessir hlutir verði lagaðir með einhverjum hætti. Það er sárt að upplifa það að við erum með starfsfólk á þessari heilsugæslustöð sem vinnur hörðum höndum alla daga, kvöld, nætur og helgar við að reyna að halda úti þjónustu sem það á í raun og veru ekki að geta gert. Miðað við þá aðstöðu sem er til staðar og miðað við það fjármagn sem það fær er það kraftaverk að þetta fólk skuli bara yfir höfuð vera í vinnu. Eins og ég nefndi í ræðu hér um daginn eru 122 íbúar á hvern heilbrigðisstarfsmann á Suðurnesjum á sama tíma og þeir eru 40 á Vestfjörðum. Það gengur í raun og veru kraftaverki næst að þetta fólk skuli ekki hafa bugast og ég vil bara ítreka við ráðherrann (Forseti hringir.) að það verði unnið í þessu fljótt og vel.