landlæknir og lýðheilsa.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við komum að hlutverki heilsugæslunnar í samhengi við það mál sem við erum að ræða hér en sérstaklega að stöðunni á Suðurnesjum af því að við viljum að heilsugæslan geti sinnt þessu hlutverki sínu og ég veit að hv. þingmaður þekkir stöðuna mjög vel og þróunina í þessu. En það sem mér þótti mest um vert í andsvari hv. þingmanns er atriði sem mér hefur orðið mjög ljóst í samtölum mínum við starfsfólk heilsugæslunnar og það er að það stendur sig frábærlega við erfiðar aðstæður. En því tengdu vil ég draga fram að það er nefnilega ýmislegt jákvætt að gerast í skipulagi og starfi heilsugæslunnar eða heilbrigðisstofnunarinnar, ætlaði ég nú að segja, t.d. í gæðaumbótum sem eru viðbrögð við ábendingum landlæknis. Hún stendur sig um margt mjög vel og vill stofnuninni vel og er með hjartað á réttum stað fyrir stofnunina. Mér finnst mikilvægt að það komi fram. Ég held að til að takast á við þá stöðu sem hefur teiknast upp mjög hratt frá 2015, getum við sagt, með þeirri öru fjölgun og breyttu samsetningu á svæðinu verða allir aðilar að taka höndum saman um að styrkja stofnunina á svæðinu. Það er verkefnið fram undan. Það er stutt í að það verði fullbúin úttekt sem var hér farið í sem Covid-aðgerð en sem framhald af þingsályktunartillögu hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur og svo úttekt sem sú þingsályktunartillaga kvað á um. Sú vinna (Forseti hringir.) mun birtast í þeirri úttekt sem er til stuðnings þessu verkefni sem við verðum að fara í saman með sveitarfélögunum og stofnunum.