landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegur forseti. Síðsumars síðastliðið sumar áttu sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum samtal við ríkisstjórnina sem þá var um m.a. stöðuna á Suðurnesjum og þá kom fram í máli heilbrigðisráðherra að það ætti að auglýsa eftir húsnæði til bráðabirgða. Það tók nokkra mánuði að koma þeirri auglýsingu af stað og síðan hefur maður ekki séð neitt gerast. Mér finnst skrýtið að þetta skuli taka svona mikinn tíma og af því að ég horfi líka á það greiðslufyrirkomulag sem er núna komið á, að fjármagn fylgi sjúklingi, og það hefur verið heimilað á höfuðborgarsvæðinu að opna sjálfstætt rekna heilsugæslu sem stendur sig vel samkvæmt mælingum, bara mjög vel í góðri samkeppni við opinberan rekstur heilsugæslunnar í Reykjavík og fólk getur valið hvar það vill vera.
Á Suðurnesjum hefur fólk ekkert val og spurningin er: Er þetta ekki kostur sem væri nauðsynlegt að skoða bara til að búa til einhverja samkeppni, auka fjölbreytni í þjónustunni og gera fólki kleift að velja hvar það vill vera? Fólk hefur val um hvar það vill vera. Það verður annaðhvort að vera á heilsugæslunni í Reykjanesbæ eða í Reykjavík. Það eru þeir valkostir sem Suðurnesjamenn standa frammi fyrir. Þúsundir Suðurnesjamanna velja það í staðinn fyrir að vera í heimabyggð að fara til Reykjavíkur, sem er auðvitað bara fáránlegt, að vera að keyra með veikt gamalt fólk á Reykjanesbrautinni þegar hugsanlegt væri að vera með fleiri valkosti á svæðinu.
Ég vil líka nefna að það var farið í vinnu við að horfa á Reykjanesbæ eða Suðurnesin sem vaxtarsvæði og Árborg sem vaxtarsvæði. Sú vinna skilaði fínni skýrslu en það kemur ekki króna með gati (Forseti hringir.) til að uppfylla það sem stendur í þeirri skýrslu.