152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

landlæknir og lýðheilsa.

414. mál
[21:12]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir andsvarið og þessa umræðu um stöðu heilbrigðisstofnunarinnar á Suðurnesjum og heilbrigðisþjónustunnar. Um þann valkost sem hv. þingmaður dregur hér fram hef ég hef átt samtal við sveitarfélögin og þarf að ná betra samtali við heilbrigðisstofnunina líka þar um. Þessi valkostur er sannarlega til skoðunar og við erum með fjármagnaða stækkun á heilsugæsluhluta heilbrigðisstofnunarinnar í Innri-Njarðvík. En það er bara of langt í það þannig að þetta er vissulega valkostur sem hv. þingmaður fór vel yfir. Ég vil líka draga fram það jákvæða. Það er búið að stækka sjúkrarými legudeildar um 19 rúm sem eru að fara að komast í gagnið. Það er ýmislegt sem stendur bóta og hefur verið vel gert og ég legg áherslu á það sem ég sagði í fyrra andsvari að ég veit að það þarf fjölmargt að gera og það þarf að horfa til margra þátta en við verðum að taka það einhvern veginn í jákvæðum uppbyggilegum skrefum til að styrkja heilbrigðisþjónustuna á svæðinu. Ég tek undir það með hv. þingmanni en ítreka síðan þakkir, hæstv. forseti, fyrir þessa góðu umræðu.