152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[21:16]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég er farinn að hafa áhyggjur einmitt af næstu dagsetningu sem leið núna í mars síðastliðnum. Ef það er búið að taka þetta langan tíma að klára umsóknirnar sem voru með tímafrest til 1. október, hvenær verða þá umsóknirnar sem voru með tímafrest til 1. mars afgreiddar? Náum við því í sumar? Eða verðum við rétt að klára umsóknirnar sem átti að klára um jólin núna í sumar og hitt verði ekki fyrr en einhvern tímann eftir sumar eða þess háttar? Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun kom nefnilega fram að gjaldið sem er verið að innheimta fyrir þetta, sem er skattur, veitir tvímælalaust væntingar og réttindi til þeirrar þjónustu sem greitt er fyrir. Þá er þetta bara spurning um tímann sem stjórnsýslan tekur. Við í þinginu erum með í þingskapalögum að þegar við biðjum um gögn þá eru það sjö dagar. Þetta er ekkert rosalega flókið. Þetta eru tvær mismunandi leiðir og þarna er ráðuneytið (Forseti hringir.) að reyna að pakka þeim niður í einn bunka og segja að það stytti meðaltímann en ekkert í stærðfræðinni segir manni að það virki þannig. (Forseti hringir.) Þó að ein umsókn gangi hraðar fyrir sig og það (Forseti hringir.) hefur áhrif á aðra umsókn sem gangi þá seinna fyrir sig (Forseti hringir.) í hinu ferlinu þá er meðaltalstíminn sá sami.