152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[21:18]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Manni finnst eiginlega bara svolítið fyndið að við þurfum að koma hér upp ítrekað og ég vil þakka fyrir elju margra þingmanna að standa í þessu. Þetta hlýtur að búa til vangaveltur um valdsvið ráðherra. Hvað geta ráðherrar gert? Samkvæmt mínum hugmyndum um það getur ráðherra bara ekkert gert þetta. 6. gr. laga um ríkisborgararétt tekur af öll tvímæli um hvaða valdaeining það er sem sér um þetta og ræður yfir þessum málaflokki. Það hefur verið nefnt að hér sé kannski bara verið að fremja lögbrot. Ég hef velt því fyrir mér. Þarf ekki bara að fara að siga löggunni á ráðherrann?