um fundarstjórn.
Herra forseti. Já, enn og aftur þurfum við að koma upp í ræðustól og tala um það að hæstv. ráðherra virði ekki lög. Mér þótti miður að ráðherra einmitt yfirgaf salinn hér áðan þegar við vorum að tala um það hversu frábært það væri að vinna með hæstv. heilbrigðisráðherra sem hlustar og gerir hlutina, vill bæta hlutina og vill vinna saman í stað þess að vera með ráðherra sem síðan hunsar, ekki bara stjórnarandstöðuna heldur allt þingið og hunsar virðulegan forseta. Þannig að við bara munum það hvernig sumir eru hæstv. góðir ráðherrar og aðrir eru hæstv. ekki eins góðir ráðherrar.