mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður rakti mjög vel stöðuna. Ég get kannski komið að þessu út frá annarri hlið. Ég sagði í framsöguræðu að það væri bara óhjákvæmilegt að breyta hugsuninni og nálguninni til framtíðar og einmitt uppbyggingu á fjölbreyttu búsetuúrræðum sem eru hönnuð þannig að fólk er í návígi við annað fólk, við þjónustu, við hreyfingu, er bara virkt í daglegu lífi. Það er það sem þetta snýst um. Við eigum að opna á mjög fjölbreyttar útgáfur af slíkum kjörnum og fjármögnun á því. Ég ætla að koma aðeins að þessu frá annarri hlið. Ef við horfum á fjármögnun hjúkrunarheimila, vanfjármögnuð eins og þau eru í dag — við erum alltaf að slást um þetta, í hverjum fjárlögum, og við erum að miða við einhver daggjöld, miða við einhverja gæðavísa, gott og vel, við verðum að nálgast þetta einhvern veginn — þá erum við, miðað við fjölgunina sem er fram undan, með einhvern rúmlega 40 milljarða tékka til að reka þetta í dag. 2040 verður hann 90 milljarðar í fjárlögum. Það mun bara ryðja einhverju öðru út. Það blasir við. Þess vegna verðum við að fanga þetta í stefnu og fylgja því svo eftir með aðgerðum sem alla vega nálgast þessi háleitu markmið sem við setjum fram. Það er þess vegna óhjákvæmilegt.