mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þessa þingsályktunartillögu. Ég fór í smá stærðfræði og uppgötvaði að hæstv. ráðherra gæti verið kominn á ellilífeyri þegar þessi áætlun endar og ég get sjálfur orðið skráð mig í Félag eldri borgara. Það er nefnilega þannig að við eldumst og við þurfum að tryggja að þær kynslóðir sem ruddu brautina fyrir okkur, okkar foreldrar, okkar afar og ömmur, þau okkar sem eigum þau enn á lífi, að við séum að byggja þeim góða framtíð. Ég fagna flestu sem kemur fram í þessari þingsályktunartillögu . En það er einn hlutur sem ég sakna dálítið og það er úr kafla fjögur þar sem talað er um virka notendur. Það sem ég sakna er hlutur sem greinilega var bætt inn í næsta frumvarp sem við fáum að tala um, sem er um stjórn Landspítalans, og það er að hlusta á notendur. Hér inni er talað um að hlusta á fagaðilana úr heilbrigðisstéttunum, talað um að verið sé að hlusta á hjúkrunarheimilin og aðra sem reka þetta. Ég sakna svolítið þess að við hlustum á gamla fólkið, eldra fólkið, vegna þess að við erum að tala um það hvernig þjónustan verður við þau sem eldri eru og þau þurfa að fá að hafa sitt að segja um þetta. „Ekkert um mig án mín“ gildir líka um þau.