152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[21:55]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir þessa góðu spurningu sem ég ætla að byrja á því að svara. Við höfum lagst talsvert yfir þetta, ég og hæstv. félagsmálaráðherra, og við erum tilbúnir með minnisblað um samræmingu mála á milli ráðuneytanna sem við förum með fyrir ráðherranefnd um samræmingu mála. Það er fundur sem átti að hafa átt sér stað en honum var frestað og honum verður fundinn tími næstu daga. Í kjölfarið munum við skipa þennan hóp og bara hefja þessa vinnu þannig að hún geti farið af stað þó að vonandi verði þetta mál komið hér að lokinni fyrri umr. til hv. velferðarnefndar. Það er svarið, eins og ég veit að staðan er núna, við þessari spurningu sem er góð og ég hlakka mjög til að fylgja eftir þeirri vinnu.

Ég er líka sammála hv. þingmanni um það sem ég fór inn á að sé óskastaða, að við hættum að horfa á einhver aldurstakmörk, vinnum bara eins lengi og okkur lystir og förum að brjóta niður þessa múra um að láta aldur binda okkur í hverju sem er. Ég held að ég gæti enn þá hlaupið inn á fótboltavöll en það er líklega búið.