152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[22:19]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar ábendingar. Ég er ekki með þessar tölur svona nákvæmar en ég hef alla vega vitneskju um að það er ekki verið að ráðstafa þeim fjármunum sem verið er að innheimta af fólki sérstaklega til að sinna þessum málaflokki í það sem þeir fjármunir voru ætlaðir til í byrjun. Það er í gegnum tíðina búið að búa til alls konar sértekjur fyrir ríkissjóð. Ég nefni sem dæmi Atvinnuleysistryggingasjóð sem var stór og mikill sjóður til að fjármagna atvinnuleysistryggingar. Sá sjóður var bara tekinn inn í ríkissjóð og svo er verið að betla út úr ríkissjóði einhverja fjármuni inn í þessa sjóði. Það nær ekki nokkurri átt að við séum að gera þetta þannig. Það að við höfum verið að slugsa með Framkvæmdasjóð aldraðra gerir það að verkum að við erum í vondri stöðu núna. Ef það er rétt sem hv. þingmaður segir, að það séu orðnir 20 milljarðar — það kostar um 2–3 milljarða að byggja 60 rýma hjúkrunarheimili. Þá sjáum við í hendi að við værum kannski með sjö til níu auka hjúkrunarheimili ef peningunum hefði verið varið í það sem þeir voru ætlaðir til upphaflega. Mér finnst að stjórnvöld geti ekki skautað fram hjá því að verið er að taka peninga af fólki til að fara í tiltekin verkefni en svo er bara sagt: Nei, ég ætla að nota þá í annað. Þetta er skrýtin stjórnsýsla, finnst mér.